|
|
272/2001
felld brott með rg. nr. 1100/2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 709/2000, um tollmeðferð póstsendinga.
1. gr. 1. mgr. 13. gr. orðist svo:
Póststarfsmanni er heimilt, í viðurvist tollvarðar, að opna póstböggul sem kemur erlendis frá í því skyni að afla vörureiknings til að byggja á útreikning aðflutningsgjalda, sbr. 2. mgr. 33. gr. laga nr. 142/1996 um póstþjónustu, ef viðtakandi hefur gefið póstflytjanda skriflega heimild til þess. Um þagnarskyldu póststarfsmanna fer eftir lögum um póstþjónustu.
2. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 107. gr. tollalaga nr. 55/1987, með síðari breytingum, og öðlast gildi þegar í stað.
Fjármálaráðuneytinu, 28. mars 2001.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson. Jóna Björk Guðnadóttir.
Stofnreglugerð: 709/2000 - Reglugerð um tollmeðferð póstsendinga
|