Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

266/2013

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“). - Brottfallin

1. gr.

Við 8. gr. bætast 3 nýir stafliðir; n-, o- og p-liður, sem orðast svo:

n)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 109/2012 frá 9. febrúar 2012 sem breytir viðauka XVII við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2012 frá 28. september 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/04, bls. 177-225.

o)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 125/2012 frá 14. febrúar 2012 sem breytir viðauka XIV við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2012 frá 28. september 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/05, bls. 226-229.

p)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 412/2012 frá 15. maí 2012 sem breytir viðauka XVII við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2012 frá 26. október 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/12, bls. 254-256.



2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 4. mars 2013.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica