Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

262/1999
felld brott með rg. nr. 343/2006

REGLUGERÐ
um undirbúning, gerð og eftirlit með samningum
sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs.

Gildissvið.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um samninga um verklegar framkvæmdir og rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs samkvæmt heimild í 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins. Hún gildir einnig um samninga um rekstrarverkefni sem gerðir eru samkvæmt heimild í öðrum lögum nema ríkari kröfur séu gerðar til samninganna í sérlögum.


Orðskýringar.
2. gr.
Rekstrarverkefni: Með rekstrarverkefni er bæði átt við þjónustu sem verkkaupi kaupir vegna starfsemi sinnar og þjónustu sem verksali lætur þriðja aðila í té á kostnað verkkaupa.
Verkkaupi:Sá sem kaupir verk eða þjónustu samkvæmt samningi.
Verksali:Sá sem með samningi tekur að sér að vinna verk eða veita þjónustu.

Önnur hugtök sem notuð eru í reglum þessum eru skýrð í 3. gr. reglugerðar um innkaup ríkisins, nr. 302/1996, og í stöðlum ÍST30, ÍST32 og ÍST35 staðfestum af Staðlaráði Íslands.


Heimild til samningsgerðar.
3. gr.
Samningur verður aðeins gerður samkvæmt 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins að áætlað sé fyrir verkefninu í fjárlögum. Áður en verkefni er boðið út eða um það samið í fyrsta sinn þarf að gera á því frumathugun. Felst hún í könnun og samanburði þeirra kosta er til greina koma við að leysa þær þarfir sem verkefninu er ætlað að fullnægja. Í greinargerð um frumathugun sem senda skal fjármálaráðuneyti og hlutaðeigandi ráðuneyti áður en samningur er gerður, skal greina frá markmiðum og ávinningi ríkisins af áformuðum samningi.

Leita skal samþykkis fjármálaráðherra og hlutaðeigandi ráðherra fyrir samningsgerð sem felur í sér meiri heildarfjárskuldbindingu fyrir ríkissjóð á samningstímanum vegna verkefnisins en veitt er til þess í fjárlögum.

Ríkisstofnunum í A-hluta skal heimilt að gera samninga án atbeina ráðherra um afmörkuð rekstrarverkefni, enda sé ekki um að ræða starfsemi sem felur í sér vald til að taka ákvarðanir er lúta að réttindum og skyldum manna og kostnaður við verkefnið sé ekki umtalsverður hluti heildarútgjalda stofnunarinnar.

Í fjárlagatillögum hvers árs skal gera grein fyrir áætluðum árlegum kostnaði sem hlýst af samningi, það sem eftir lifir samningstímans.


Val á samningsaðila.
4. gr.
Samningar á grundvelli þessarar reglugerðar falla undir lög og reglur um opinber innkaup og framkvæmdir, þar sem kveðið er á um skyldu til að bjóða út verkefni, viðmiðunarfjárhæðir og málsmeðferð. Við undirbúning samninga skal fylgja, eftir því sem við á, lögum um framkvæmd útboða nr. 65/1993, lögum um opinber innkaup nr. 52/1987, með síðari breytingum, lögum um skipan opinberra framkvæmda nr. 63/1970 og reglugerð um innkaup ríkisins nr. 302/1996.


Verklýsing.
5. gr.
Gera skal grein fyrir verkefninu í útboði eða í samningi. Þar komi fram í hverju það er fólgið, hvert umfang þess er, hvaða afurðir eða þjónustu það felur í sér og hvaða kröfur eru gerðar m.a. til gæða og aðstöðu, faglegrar þekkingar og fjárhagslegs bolmagns verksala. Skipta skal verki í þætti eða einingar eftir því sem við á.

Ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar gilda í þeim tilvikum er verksali tekur að sér að annast stjórnsýslu. Einkaaðila verður ekki falið með samningi opinbert vald til að taka ákvarðanir um réttindi og skyldur manna nema sérstök heimild sé til þess í lögum.

Heildarfjárskuldbinding ríkisins vegna verkefnis á samningstíma, einingarverð og áætlaðar árlegar greiðslur skulu tilgreindar í samningnum. Fjárhagsleg ábyrgð ríkisins vegna verkefnisins takmarkast við fjárhæðir í samningi.

Í samningi skal að því marki sem gjaldtökuheimildir eru fyrir hendi í lögum, gera grein fyrir heimild eða skyldu verksala til að innheimta gjöld vegna afurða og þjónustu sem felst í verkefninu og hvernig fara skuli með tekjur af gjaldinu. Einnig skal tilgreina hvaða tryggingu verksala er ætlað setja fyrir verkinu.


Eftirlit með samningi.
7. gr.
Verkkaupi hefur eftirlit með framkvæmd samnings, en getur falið það öðrum sé það tilgreint í samningi. Í samningi skal gera ráð fyrir að verksali tilkynni verkkaupa hver fer með yfirstjórn verkefnisins fyrir hönd hans. Verkkaupi skal áskilja sér rétt til að kanna aðstæður þar sem verkefnið er unnið og til að hafa aðgang að öllum upplýsingum um framkvæmd þess. Enn fremur skal taka fram í samningi hvaða upplýsingar er ætlast til að verksali skrái vegna verkefnisins og hvaða skýrslum honum ber ótilkvaddur að skila verkkaupa.

Í samningi skal kveðið um meðferð ágreinings og úrræði vegna vanefnda á samningsbundnum skyldum.

Sé ekki samið á grundvelli útboðs skal gera kröfu til verksala um að hann aðgreini fjárreiður verkefnisins í bókhaldi frá annarri starfsemi svo bera megi kostnað við það og einstaka þætti þess saman við sambærileg verkefni hjá ríkisaðilum. Í slíkum tilvikum þarf einnig að ákveða ráðstöfun skattskylds hagnaðar.

Einkaaðilar sem annast verkefni á grundvelli samnings skulu skila verkkaupa ársreikningi á grundvelli laga um ársreikninga nr. 144/1994 með síðari breytingum. Ríkisendurskoðun annast samkvæmt lögum nr. 86/1997 endurskoðun reikninga vegna samninga um lögboðna þjónustu sem ríkissjóði ber að greiða fyrir og getur gert stjórnsýsluendurskoðun á framkvæmd hennar.

Sé verksali sjálfseignarstofnun skal í samningi kveða á um að meðferð mála varðandi samningagerð og lánveitingar verksala fari eftir ákvæðum 72. gr. og 104. gr. hlutafélagalaga, nr. 2/1995.


Samningstími.
8. gr.
Samningstími skal lengstur vera sex ár í senn, en þó er heimilt að semja til lengri tíma ef verkkaupi gerir kröfu um að verksali komi sér upp kostnaðarsamri aðstöðu eða búnaði vegna verkefnisins. Í samningi skal kveðið á um uppsögn hans og aðlögun að breyttum forsendum. Uppsagnarfrestur samnings skal stystur vera þrír mánuðir.


Gildistaka.
9. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 5. mgr. 30. gr. laga nr. 88/1997 um fjárreiður ríkisins, öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 12. apríl 1999.

Geir H. Haarde.
Árni Kolbeinsson.

nr_262_1999.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt