Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

259/2005

REGLUGERÐ
um breytingar á reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar.

1. gr.
Í 1. málslið, 1. mgr. 2. gr. kemur orðið „ökutækja“ í stað „bifreiða“.


2. gr.
1. mgr. 4. gr. orðist svo:
Takmarkanir á fjölda atvinnuleyfa í leiguakstri gilda á eftirtöldum svæðum:
I.Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Bessastaðahreppi, Reykjanesbæ, Grindavík, Miðnes-, Gerða- og Vatnsleysustrandarhreppi. Hámarkstala er 560 atvinnuleyfi.
II.Akureyri. Hámarkstala er 20 atvinnuleyfi.
III.Árborg. Hámarkstala er 7 atvinnuleyfi.


3. gr.
Við 2. málslið 1. mgr. 6. gr. bætast orðin „... og fötlun hindri þá ekki í starfi.“


4. gr.
Lokamálsliður 1. mgr. 7. gr. fellur niður.


5. gr.
3. málsliður 1. mgr. 16. gr. orðist svo:
Þó má orlofsútgerð aldrei vara lengur en 63 daga á ári nema nýtt sé heimild til færslu daga frá fyrra tímabili sbr. 2. mgr. þessarar greinar.


6. gr.
Á eftir 2. mgr. 19. gr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
Atvinnuleyfishafi sem sviptur hefur verið ökuleyfi lengur en þrjá mánuði skal leggja inn atvinnuleyfið til Vegagerðarinnar á meðan ökuleyfissvipting varir.


7. gr.
3. mgr. 24. gr. orðist svo:
Bifreiðastöð skal sjá til þess að ekki séu notaðar aðrar bifreiðar til leiguaksturs á bifreiðastöð en þær sem skráðar eru sem leigubifreiðar og eru eign viðkomandi leyfishafa eða leyfishafi er skráður fyrsti umráðamaður að, skv. samningi við fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.


8. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt lögum nr. 134/2001, um leigubifreiðar, öðlast gildi 1. október 2005 og staðfestist hér með til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Samgönguráðuneytinu, 23. febrúar 2005.

Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
nr_259_2005.doc
Stofnreglugerð:
397/2003 - Reglugerð um leigubifreiðar.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt