|
|
252/2005
felld brott með rg. nr. 507/2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni,
nr. 257, 18. apríl 2000.
1. gr. 2. grein reglugerðarinnar orðist svo:
Leyfi til aksturskeppni skal einungis veita eftirtöldum aðilum:
| a) | Vélhjóla- og vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ vegna keppni ökutækja með þrjú hjól eða færri. |
| b) | Landssambandi íslenskra akstursfélaga vegna keppni ökutækja með fjögur hjól eða fleiri. |
Aksturskeppni skal fara fram undir yfirstjórn fulltrúa sem lögreglustjóri samþykkir.
2. gr. 4. mgr. 16. greinar reglugerðarinnar, c. lið, er þannig breytt að í stað tölunnar „80“ kemur talan „85“.
3. gr. Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 34. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 21. febrúar 2005.
Sturla Böðvarsson. Ragnhildur Hjaltadóttir.

Stofnreglugerð: 257/2000 - Reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni.
|