REGLUGERÐ
um friðun
tiltekinna villtra fuglategunda, friðlýsingu æðarvarps,
fuglamerkingar,
hamskurð o.fl.
1. gr.
Dvöl manna er óheimil við hreiður
fálka, hafarnar, snæuglu, haftyrðils, keldusvíns og þórshana vegna myndatöku,
upptöku á hljóðum, athugana á lifnaðarháttum eða í öðrum tilgangi sem ætla má
að geti valdið truflunum.
Á tímabilinu 15. mars - 15. ágúst
er mönnum óheimilt að koma nær arnarhreiðrum en 500 m nema brýna nauðsyn beri
til, svo sem vegna lögmætra nytja sem ekki er hægt að stunda á öðrum árstíma,
enda sýni menn ítrustu varfærni og forðist að trufla fuglana. Þessi takmörkun á
umferð gildir þar sem ernir eru að búa sig undir varp og við þau hreiður sem
orpið hefur verið í.
Umhverfisráðuneytið getur, að
fenginni umsögn ráðgjafarnefndar um villt dýr, veitt undanþágu frá ákvæðum 1.
og 2. málsgr., enda sé sótt um hana fyrirfram og skilyrði sett um umgang við
hreiður, þ.á m. um það tímabil sem viðkomandi er heimil dvöl við hreiður.
Óheimilt er að hrófla við hreiðrum
og hreiðurstöðum þeirra tegunda sem taldar eru upp í 1. málsgr., hvort sem er á
varptíma eða utan hans.
2. gr.
Sýslumaður annast friðlýsingu
æðarvarps. Beiðni til sýslumanns um friðlýsingu æðarvarps skal koma frá
landeiganda, ábúanda eða umráðamanni æðarvarps. Skal í beiðninni tilgreina
staðsetningu og mörk varpsins eða sýna svæðið skýrt á viðurkenndu korti eða
loftmynd. Sýslumaður getur krafist þess að beiðni um friðlýsingu fylgi
staðfesting tveggja kunnugra manna um að æðarvarp sé á umræddu svæði eða að
líklegt sé að koma megi þar upp æðarvarpi. Sýslumaður skal fá staðfestingu
byggingarfulltrúa um að aðstöðu sé rétt lýst.
Ákvörðun um friðlýsingu æðarvarps
skal birt í Lögbirtingablaðinu og gildir í 10 ár frá birtingu.
Sýslumaður skal halda skrá um
friðlýst æðarvörp og skal hún liggja frammi á skrifstofu hans. Skrá þessi,
ásamt síðari breytingum, skal send til viðkomandi sveitastjórnar, embættis
veiðistjóra og hlunnindaráðunautar Bændasamtaka Íslands.
Umsækjandi ber kostnað við friðlýsingu
æðarvarps.
3. gr.
Friðlýsing æðarvarps gildir á
tímabilinu frá 15. apríl til og með 14. júlí ár hvert. Friðlýsingin felur það í
sér að öll skot eru bönnuð nær friðlýstu æðarvarpi en 2 km, nema brýna nauðsyn
beri til. Á sama tíma má eigi án leyfis varpeiganda leggja net í sjó nær
friðlýstu æðarvarpi en 250 m frá stórstraumsfjörumáli. Jafnframt felur
friðlýsingin í sér að innan friðlýstra svæða er öll óviðkomandi umferð og
röskun bönnuð, svo og óþarfa hávaði af völdum manna og véla, nema með leyfi varpeiganda.
Friðlýst æðarvörp skal auðkenna með áberandi hætti, þar sem því verður við
komið. Í óbyggðum eyjum og hólmum á þetta ekki við.
4. gr.
Heimilt er að stugga við örnum sem
halda til eða sjást í friðlýstum æðarvörpum, svo fremi sem fuglunum sjálfum,
hreiðrum þeirra, eggjum og ungum er ekki hætta búin. Þó er óheimilt að stugga
við hreiðurörnum innan tveggja km frá arnarvarpstað.
Heimilt er að nota reyk, hræður,
fælur og gasbyssur til að stugga við örnum.
5. gr.
Þeir sem hirða haförn, fálka,
smyril, haftyrðil í Grímsey, snæuglu, branduglu, keldusvín, þórshana eða
flækingsfugla, ósjálfbjarga eða dauða, skulu senda þá til Náttúrufræðistofnunar
Íslands. Ef umræddir fuglar drepast í haldi eða reynast ekki hafa verið skotnir
er Náttúrufræðistofnun Íslands heimilt að afhenda finnanda fuglinn til
uppsetningar og varðveislu. Óheimilt er að selja og kaupa slíka fugla.
6. gr.
Sá sem finnur eða handsamar
merktan fugl skal senda upplýsingar þar að lútandi til Náttúrufræðistofnunar
Íslands, hvort sem merkið er íslenskt eða útlent. Eftirtaldar upplýsingar þurfa
að koma fram um merkta fugla sem finnast: Frá hvaða landi merkið er, númerið á
merkinu, hverrar tegundar fuglinn er talinn vera, hvar fuglinn fannst, hvenær
fuglinn fannst, atvik fundar, nafn, heimilisfang og sími tilkynnanda og
finnanda sé hann annar. Merki af dauðum fuglum ber að senda til
Náttúrufræðistofnunar Íslands, auk þess sem æskilegt er að senda fuglinn, verði
því við komið.
7. gr.
Þeir sem vilja taka hami eða skinn
af villtum dýrum og setja upp skulu skrá sig hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Skráning þessi skal vera hamskera að kostnaðarlausu.
Hamskerar skulu skrá öll villt dýr
sem þeir setja upp og geta hvar, hvenær og hvernig dýrið fannst, frá hverjum
það er og hver varðveitir það. Afrit af árlegum viðbótum við skrána skulu send
til Náttúrufræðistofnunar Íslands fyrir 1. mars næsta árs.
8. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer
samkvæmt 19. og 20 gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og villtum spendýrum.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum og öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. skal
friðlýsing æðarvarps sem átt hefur sér stað fyrir gildistöku reglugerðarinnar
halda gildi sínu á árinu 1996.
Umhverfisráðuneytinu, 19. apríl 1996.
Guðmundur Bjarnason.
Ingimar
Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð