Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

248/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 175/2008 um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum. - Brottfallin

1. gr.

a-liður 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Yfirstýrimaður á fiskiskipum og öðrum skipum að ótakmarkaðri stærð og farsviði eftir 12 mánaða siglingatíma sem stýrimaður eða skipstjóri á skipum 24 metrar og lengri að skráningarlengd (Skírteini: Ca.).

2. gr.

Á eftir a-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur nýr liður sem verður b-liður og orðast svo:

  1. Undirstýrimaður á varðskipum eftir 18 mánaða siglingatíma (Skírteini: Db.).

3. gr.

4. og 5. mgr. II. viðauka reglugerðarinnar orðist svo:

Heimilt er að gefa út ný skírteini til skipstjórnarstarfa á varðskipum skv. lögum nr. 30/2007 og þessari reglugerð í stað skírteina skv. lögum sem fallið hafa á brott á þann hátt sem eftirfarandi tafla sýnir:

Skírteini

Takmarkanir

Eldra skírteini

Skipherra (EA)

engar

B.5 - 4. stig

Yfirstýrimaður (DA)

engar

B.2 - 3. stig

Undirstýrimaður (DB)

engar

A.5 - 2. stig



Um lágmarksfjölda skipstjórnarmanna á varðskipum gilda eftirfarandi reglur:

Lengd skips

Skipstjórn

< 24 metrar

Skipherra (EA) og stýrimaður (DA)

24 - 45 metrar

Skipherra (EA), yfirstýrimaður (DA) og undirstýrimaður (CA)

> 45 metrar

Skipstjóri (EA), yfirstýrimaður (DA) og tveir undirstýrimenn (DB)



4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1., 3. og 4. mgr. 5. gr., 1. og 3. mgr. 6. gr., 3. og 4. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 19. gr. laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007 og staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. mars 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica