Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

244/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 444/2009, um innleiðingu ákvarðana framkvæmdastjórnar EB um samvinnu milli yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2011/141/ESB frá 1. mars 2011 um breytingu á ákvörðun 2007/76/EB um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd að því er varðar gagnkvæma aðstoð.

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 23. október 2008, bls. 18-19.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. gr. laga nr. 56/2007, um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 20. febrúar 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.