|
|
242/2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002.
1. gr. Við 3. gr. bætist við ný skilgreining svohljóðandi:
Íþróttamannvirki eru íþróttahús, íþróttavellir og íþróttamiðstöðvar þar sem fram fer skipulögð starfsemi og sem almenningur hefur aðgang að.
2. gr. Eftir 1. mgr. 19. gr. kemur ný mgr. svohljóðandi:
Heilbrigðisnefnd getur heimilað að farið sé með dýr inn í íþróttamannvirki þar sem aðstaða er til íþróttaiðkunar á ís vegna sýninga eða keppni. Kveða skal á um það í starfsleyfi íþróttamannvirkisins eða gefa út sérstakt starfsleyfi fyrir einstakar sýningar eða keppni ef slík starfsemi er ekki með reglubundnu millibili á skautasvellinu. Umhverfisstofnun skal gefa út leiðbeiningar um skilyrði slíks starfsleyfis. Að sýningu eða keppni lokinni skal upplýsa gesti sem koma í íþróttamannvirkið um að í húsinu hafi verið dýr og hvaða dýr um ræðir þannig að þeir sem haldnir eru ofnæmi þurfi ekki að verða fyrir óþægindum. Í starfsleyfi skal setja skilyrði sem á að uppfylla fyrir hverja sýningu eða keppni.
3. gr. Á eftir 3. mgr. 27. gr. kemur nýr málsliður svohljóðandi:
Ekki er þó skylt að hafa handlaug á gistiherbergjum á einkaheimilum.
4. gr. Á eftir 1. ml. 2. mgr. 42. gr. kemur nýr ml. svohljóðandi:
Í sumarbúðum og skyldri starfsemi þar sem dvalartími er tvær vikur eða skemmri tími má miða við minni gólfflöt á barn í svefnsal með kojum, þó aldrei minni en 2 m².
5. gr. Við fylgiskjal 2 bætist nýr málsliður við liðinn veitinga- og samkomustaðir:
Framangreindar kröfur gilda þó ekki um kirkjur þar sem messað er sjaldnar en sex sinnum á ári.
6. gr. Í stað orðsins „gæludýr“ í fylgiskjali 3 kemur (í viðeigandi beygingarfalli): dýr.
7. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 4. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðneytinu, 8. mars 2007.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir. Sigrún Ágústsdóttir.

Stofnreglugerð: 941/2002 - Reglugerð um hollustuhætti.
|