Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

235/2003

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 2. tölul. 2. mgr. 8. gr.:
Á eftir orðunum "Sjúkra- eða lyfjakostnaður" komi orðin "og heyrnartæki".


2. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 2. mgr. 9. gr.:
Á eftir orðunum "sjúkra- eða lyfjakostnað" komi orðin "eða kostnað vegna kaupa á heyrnartæki".


3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 1. apríl 2003.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica