Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

234/2010

Reglugerð um gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir matvæla-, áburðar-, sáðvöru- og fóðureftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvæla­stofnunar skulu fyrirtæki, einstaklingar og lögaðilar greiða eftirlitsgjald í sam­ræmi við gjaldskrá þessa. Gjald skal ekki vera hærra en raunkostnaður við eftirlitið til að standa straum af launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. vegna aðstöðu, áhalda, búnaðar, þjálfunar, ferðalaga og tengds kostnaðar. Einnig skal greiða gjald vegna kostnaðar við sýnatöku og greiningu á rannsóknastofu.

2. gr.

Gjald fyrir reglubundið eftirlit sem greiða þarf fyrir hverja eftirlitsheimsókn er skipt í flokka eftir umfangi við eftirlitið og eru gjaldskrárflokkar eftirfarandi:

Gjaldskrárflokkun

Flokkur

Gjald kr.

Flokkur

Gjald kr.

1

7.084   

  7

46.046   

2

10.626   

  8

53.130   

3

17.710   

  9

63.756   

4

24.794   

10

88.550   

5

31.878   

11

123.970   

6

38.962   

12

159.390   


Flokkun eftirlitsskyldrar starfsemi kemur fram í viðauka I með reglugerð þessari.

Þegar reglubundið eftirlit er framkvæmt á sama tíma og hjá sama aðila sem rekur fleiri en eina tegund starfsemi á einni og sömu starfsstöð skal fullt gjald greiðast af starfsemi sem hefur hæstu gjaldskrárflokkunina en 60% af gjaldi fyrir aðra starfsemi skv. viðauka I.

Fyrir annað eftirlit en tilgreint er í viðauka I í reglugerð þessari skal greiða tímagjald að fjárhæð 7.084 kr./klst. auk ferðakostnaðar. Tímagjald greiðist einnig vegna vinnu við leyfisveitingar og fyrir viðbótareftirlit. Fari eftirlit fram utan venjulegs vinnutíma, milli kl. 08.00-17.00 á virkum dögum, skal greiða tímagjald að fjárhæð 10.752 kr./klst. Greiða skal 2.673 kr. akstursgjald fyrir hverja eftirlitsheimsókn. Auk þess skal greiða kostnað vegna rannsókna og greininga á áburði og fóðri og mjólk og ostum skv. viðauka I en kostnaður vegna annarra rannsókna og greininga skal greiðast af eftirlitsþola skv. raunkostnaði.

3. gr.

Af leyfisskyldri starfsemi er heimilt að innheimta gjald fyrir útgáfu leyfis sem nemur einu tímagjaldi, 7.084 kr., hvort sem um er að ræða nýja starfsemi eða endurnýjun leyfis.

4. gr.

Greiða skal gjald vegna vinnu við inn- og útflutning skv. neðangreindri töflu:

Inn- og útflutningur

Gjald kr.

Útflutningur dýraafurða, allt að 5,0 kg, utan EES

2.000

Útflutningur dýraafurða, sem hluti af eigin farangri, utan EES

200

Útflutningsvottorð sjávarafurðir

3.500

Útflutningsvottorð, lifandi hrogn

3.500

Útflutningsvottorð, lifandi seiði

3.500

Útflutningur plantna og plöntuafurða, þar með talið viðarumbúðir og fræ

3.500

Innflutningseftirlit, notaðra landbúnaðartækja

25.000

Innflutningseftirlit, sæði hunda

7.000

Innflutningseftirlit, hundar og kettir

24.000

Innflutningseftirlit, önnur gæludýr

7.000

Innflutningseftirlit, með sáðvöru (s.s. fræ og sáðkorn), utan EES

7.320

Innflutningseftirlit, áburður utan EES

25.620

Útflutningseftirlit, sauðfjársæði

3.500

Útflutningsáritun, hundar og kettir

1.500



Gjald fyrir annað inn- og útflutningseftirlit skal greiðast skv. tímagjaldi.

5. gr.

Eftirlitsgjald vegna heilbrigðisskoðunar á sláturdýrum, sbr. 11. gr. laga nr. 96/1997, er 4,4 kr. fyrir hvert kíló kindakjöts, 4,7 kr. fyrir hvert kíló svínakjöts, 4,3 kr. fyrir hvert kíló nautgripakjöts, 6,9 kr. fyrir hvert kíló hrossakjöts og 2,1 kr. fyrir hvert kíló alifuglakjöts. Gjaldið greiðist skv. innvegnu magni kjöts í afurðastöð í samræmi við framleiðsluskýrslur sláturleyfishafa til Bændasamtaka Íslands. Sláturleyfishafa er skylt að skila undirritaðri framleiðsluskýrslu mánaðarlega fyrir 15. hvers mánaðar fyrir framleiðslu liðins mánaðar. Framleiðsluskýrsla skal undirrituð af framkvæmdastjóra eða af öðrum aðila fyrir hans hönd.

Bændasamtök Íslands skulu skila til Matvælastofnunar framleiðslutölum hvers tímabils eigi síðar en 20. hvers mánaðar fyrir liðinn mánuð.

6. gr.

Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi Matvælastofnunar. Heimilt er að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga og fram að greiðsludegi.

7. gr.

Matvælastofnun annast innheimtu eftirlitsgjalda skv. reglugerð þessari. Rísi ágreiningur um gjaldskyldu eða önnur atriði er varða framkvæmd reglugerðarinnar sker landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra úr þeim ágreiningi.

Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengis dóms eða sáttar.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í eftirfarandi lögum, 25. og 26. gr. laga um matvæli nr. 93/1995, 11. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr nr. 66/1998, 11. og 17. gr. laga um slátrun og sláturafurðir nr. 96/1997, 31. og 31. gr. a laga um sjávarafurðir nr. 55/1998 og 8. og 8. gr. a laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 336/2005 um innheimtu gjalds vegna heilbrigðiseftirlits með sláturafurðum og gjaldskrá nr. 377/2002 fyrir eftirlit og þjónustuverkefni dýralækna sem annast opinber eftirlitsstörf.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica