Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

230/2014

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla í I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2013 frá 3. maí 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 880/2011 frá 2. september 2011 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 208/2011 um breytingu á VII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 og reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 180/2008 og (EB) nr. 737/2008 að því er varðar skrár yfir tilvísunarrannsóknarstofur ESB og heiti þeirra. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 31.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum eða 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

5. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. febrúar 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica