REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr.
504/1997 um fjárhagslega aðstoð
við framfærendur fatlaðra og
langveikra barna.
1. gr.
Eftirfarandi
breytingar verða á 4. gr.:
a)
Í stað orðanna "16 ára" í 1. ml. 2. mgr. kemur "18 ára".
b)
Í stað orðanna "18 ára" í 2. ml. 2. mgr. kemur "20 ára".
c)
Í stað orðanna "barna með lífshættulega sjúkdóma" í 2. ml. 2. mgr.
kemur "barna í foreldrahúsum með lífshættulega sjúkdóma".
d)
Í stað orðanna "16 ára" í 1. ml. 3. mgr. kemur "18 ára".
e)
Í stað orðanna "18 ára" í 3. ml. 3. mgr. kemur "20 ára".
f)
Í stað orðanna "barna með lífshættulega sjúkdóma" í 3. ml. 3. mgr.
komi "barna í foreldrahúsum með lífshættulega sjúkdóma".
g) 4. ml. 3. mgr. fellur brott.
h)
Tvær nýjar mgr., 4. og 5. mgr., bætast við og hljóða svo:
Enginn
getur notið umönnunargreiðslna samtímis greiðslum í fæðingarorlofi vegna sama
barns.
Ef
réttur skapast til umönnunargreiðslna og örorkubóta vegna sama ungmennis er
heimilt að velja þær bætur sem hærri eru.
2. gr.
Eftirfarandi
breyting verði á 5. gr.:
a)
2. ml. 1. mgr. hljóðar svo:
Þegar
sérstaklega stendur á er heimilt að hækka bætur um allt að 25% eftir reglum sem
tryggingaráð setur.
b)
Ný mgr., 4. mgr., bætist við og hljóðar svo:
Heimilt
er að fenginni umsókn að framlengja umönnunargreiðslur í allt að 6 mánuði eftir
andlát langveiks eða fatlaðs barns sem notið hefur umönnunargreiðslna.
3. gr.
Reglugerð
þessi er sett með stoð í 4. gr. sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega
aðstoð með síðari breytingum og öðlast gildi 1. apríl 2000.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
15. mars 2000.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Sólveig Guðmundsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð