REGLUGERÐ
um skráningu mála
hjá héraðsdómstólum, þingbækur, skjalavörslu
o.fl.
I. KAFLI
Málaskrár.
1. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal skrá þau einkamál og opinberu
mál, sem berast dómstólnum til meðferðar, svo sem nánar greinir í reglugerð
þessari.
Skráning dómsmála vegna aðfarargerða, nauðungarsölu og
skipta fer eftir fyrirmælum reglugerða þar að lútandi.
2. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal haldin málaskrá um einkamál
sem þar eru rekin. Í skrána skal færa eftirtalin atriði:
1. Nöfn aðila og umboðsmanna þeirra.
2. Hvenær mál er þingfest, þingað er í því og það er
dómtekið.
3. Hvort mál er flutt munnlega eða skriflega.
4. Nafn dómara sem fer með málið og hvenær því er úthlutað
honum.
5. Hvernig og hvaða dag máli lýkur.
6. Flokkun mála.
Í málaskrána skal einnig færa eftirfarandi atriði ef
átt getur við:
1. Dagsetningu kæru til Hæstaréttar á úrskurði.
2. Móttökudag kröfu um endurupptöku útivistarmáls,
dagsetningu ákvörðunar um endurupptöku og niðurstöðu máls.
Öll einkamál skulu númeruð við þingfestingu í áframhaldandi
númeraröð innan hvers árs. Við endurupptöku ber mál sama númer og fyrr.
Sakaukasök, meðalgöngusök, gagnsök og framhaldssök skal færa inn í upphaflega
skráningu máls.
Flokkun mála skv. 6. tölul. 2. mgr. skal gerð í samræmi við
reglur sem dómsmálaráðuneytið setur.
3. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal að auki haldin skrá um
eftirfarandi málefni:
1. Mál sem fara eftir lögum um horfna menn.
2. Lögræðissviptingar.
3. Sjópróf.
4. Sönnunarfærslu fyrir dómi án tengsla við rekstur máls
fyrir sama dómstóli, sbr. XI. og XII. kafla laga um meðferð einkamála.
5. Synjun um útgáfu réttarstefnu í ógildingar- eða
eignardómsmáli eða máli, þar sem er leitað eftir flýtimeðferð, sbr. XVIII. og
XIX. kafla laga um meðferð einkamála.
Í skrá skv. 1. mgr. skal færa eftirfarandi atriði eftir því
sem á við:
1. Móttökudag beiðni eða kröfu.
2. Hver gerir beiðni eða kröfu og nafn umboðsmanns hans.
3. Að hverju beiðni eða krafa beinist og hverjir aðrir eiga
eftir atvikum aðild að málefninu ásamt nöfnum umboðsmanna þeirra.
4. Hvenær afgreiðslu er lokið.
5. Hver annast afgreiðslu málefnis við dómstólinn.
Í þessa skrá skal að auki færa kærur til Hæstaréttar vegna
viðkomandi málefna og hvenær og hvernig slíkum málum lýkur.
4. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal haldin málaskrá um ákærumál
sem þar eru rekin. Í skrána skal færa eftirtalin atriði:
1. Nafn, kennitölu og heimilisfang ákærða (ákærðu).
2. Dagsetningu ákæru og útgefanda hennar.
3. Brotaflokkun.
4. Nafn þess sem flytur mál af hálfu ákæruvalds og nafn
verjanda eða talsmanns ákærða.
5. Nafn dómara sem fer með málið og hvenær því er úthlutað
honum.
6. Útgáfudag fyrirkalls.
7. Hvenær mál er þingfest, þingað er í því og það er
dómtekið.
8. Hvernig og hvaða dag máli lýkur.
Í málaskrána skal einnig færa eftirfarandi atriði ef átt
getur við:
1. Dagsetningu og efni úrskurðar sem er kveðinn upp í máli
undir rekstri þess.
2. Kæru til Hæstaréttar á ákvörðun eða úrskurði undir
rekstri máls og hvenær og hvernig slíku máli lýkur.
3. Móttökudag kröfu um endurupptöku útivistarmáls,
dagsetningu ákvörðunar um endurupptöku og niðurstöðu máls.
Ákærumál skal bera sama númer við meðferð hjá
héraðsdómstóli og það hefur við komu til hans. Við endurupptöku ber mál sama
númer og fyrr. Þegar mál eru sameinuð skal eldra númer notað. Framhaldsákæra
skal færð inn í upphaflega skráningu máls.
Flokkun brota skv. 3. tölul. 2. mgr. skal gerð í samræmi
við reglur sem dómsmálaráðuneytið setur.
5. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal að auki haldin skrá um kröfur
um ákvarðanir, úrskurði og sönnunarfærslu vegna rannsóknar opinberra mála.
Í skrá skv. 1. mgr. skal færa eftirfarandi atriði eftir því
sem á við:
1. Móttökudag kröfu.
2. Hver gerir kröfu og nafn umboðsmanns hans.
3. Að hverju krafa beinist og eftir atvikum hverjum ásamt
nafni umboðsmanns hans.
4. Hvenær afgreiðslu er lokið.
5. Hver annast afgreiðslu málefnis við dómstólinn.
Í þessa skrá skal að auki færa kærur til Hæstaréttar á
ákvörðunum og úrskurðum vegna viðkomandi málefna og hvenær og hvernig slíkum málum
lýkur.
II. KAFLI
Tölfræðiupplýsingar.
6. gr.
Í lok hvers árs skal hver héraðsdómstóll gera skrá um
afgreiðslu dómsmála eftir nánari fyrirmælum dómsmálaráðherra og Hagstofu
Íslands.
Dómsmálaráðherra getur hvenær sem er óskað upplýsinga um
meðferð og afgreiðslu mála hjá héraðsdómstólum.
III. KAFLI
Þingbækur og
dómabækur.
7. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal halda þingbækur.
Þingbækur skulu vera innbundnar bækur með tölusettum
blaðsíðum, sbr. þó 3. mgr. Forstöðumaður héraðsdómstóls skal rita á titilsíðu
bókar að hún sé þingbók til nota við dómstólinn.
Í stað þess að rita skýrslu í þingbók skv. 2. mgr. um það,
sem fer fram í þinghaldi, getur dómari ákveðið að láta vélrita skýrsluna eða
rita hana á tölvu jafnharðan í þinghaldi. Ef skýrsla er rituð á tölvu og vörnum
er haldið uppi í máli eða því lýkur með bókun í þingbók, skal prenta skýrsluna
út og staðfesta með undirskrift dómara. Það sama skal gert ef láta þarf af
hendi endurrit af skýrslu. Vélritaðar og tölvuprentaðar skýrslur skulu
varðveittar með öðrum gögnum máls.
8. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal halda dómabók.
Í dómabók skal safna saman vélrituðum eða tölvuprentuðum
dómum og úrskurðum, sem fela í sér niðurstöðu máls, undirrituðum af dómara.
Slíka dóma og úrskurði skal hefta eða binda saman í dómabók í þeirri röð sem
þeir eru kveðnir upp. Þegar dómabók er heft eða bundin skulu blaðsíður
tölusettar.
9. gr.
Úr einkamálum, sem dómari lýkur með því að rita á stefnu að
dómkröfur samkvæmt henni séu aðfararhæfar, skal varðveita eintak af stefnu á
löggiltum skjalapappír með áritun dómara í þar til gerðri öskju, þar sem
stefnum er raðað í eftir dagsetningu áritunar.
IV. KAFLI
Hljóðritun í
þinghöldum.
10. gr.
Ef það sem kemur fram við munnlega sönnunarfærslu fyrir
dómi er hljóðritað skal skrá í þingbók nafn skýrslugjafa, kennitölu og
heimilisfang, svo og að skýrsla sé hljóðrituð og hvernig hljóðbandsupptaka sé
merkt.
Endurrit skulu gerð af hljóðbandsupptökum eftir því sem er
mælt í lögum.
11. gr.
Búnaður til hljóðritunar í þinghöldum skal þannig gerður:
1. Upptökutæki skal vera þriggja hausa snældutæki eða
segulbandstæki.
2. Minnst fjórir hljóðnemar skulu tengdir stýribúnaði, einn
fyrir dómara, tveir fyrir aðila máls eða umboðsmenn þeirra og einn fyrir þann
sem gefur skýrslu.
3. Dómari skal geta stjórnað með stýribúnaði frá borði sínu
hvaða hljóðnemar eru opnir hverju sinni, en ljós skal kvikna á þeim á
sjálfvirkan hátt meðan hljóðupptaka stendur yfir.
Þegar hljóðupptaka fer fram skal að jafnaði vera viðstaddur
upptökustjóri dómara til aðstoðar, en hann fylgist með upptökunni og hlustar á
hana jafnóðum af bandi.
12. gr.
Ef það sem fer fram við munnlega sönnunarfærslu fyrir dómi
er tekið upp á myndband skal hljóðupptaka gerð með hætti sem svarar til ákvæða
10. og 11. gr. eftir því sem getur átt við.
V. KAFLI
Notkun tölvu.
13. gr.
Hjá héraðsdómstólum, þar sem málaskrár eru færðar í tölvu
eða tölva er notuð til að færa skýrslur í þinghöldum, skulu notuð tölvuforrit
sem dómsmálaráðherra hefur samþykkt.
Dómsmálaráðherra ákveður hvort skráning fari fram í tölvu
sem er tengd tölvumiðstöð eða í tölvu í lokuðu kerfi hjá hverjum dómstóli.
14. gr.
Öll gagnasöfn í tölvutæku formi hjá héraðsdómstólum skal
afrita í öryggisskyni. Hvern starfsdag dómstóls skal taka öryggisafrit af
gagnasafni tölvukerfis og geyma í þar til gerðum og læstum skjalaskáp sem hefur
brunaöryggi í að minnsta kosti sextíu mínútur.
Auk öryggisafritunar skv. 1. mgr. skal að minnsta kosti
einu sinni í viku taka öryggisafrit og geyma með tryggum hætti í annarri
byggingu, svo sem í bankahólfi.
VI. KAFLI
Endurrit og
dómsgerðir.
15. gr.
Eftir beiðni þess sem hefur lögvarinna hagsmuna að gæta og
gegn greiðslu gjalds skal héraðsdómstóll láta af hendi endurrit úr þingbók eða
dómabók vegna einkamáls.
Samkvæmt beiðni ríkissaksóknara, annars ákæranda,
sakbornings eða umboðsmanns hans lætur héraðsdómstóll af hendi án endurgjalds
endurrit úr þingbók eða dómabók vegna opinbers máls. Það sama skal gert að
beiðni annars þess, sem sýnir dómara fram á að hann hafi lögvarinna hagsmuna að
gæta, gegn greiðslu gjalds samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
Endurrit skulu staðfest með undirskrift dómara eða annars
starfsmanns héraðsdómstóls. Endurrit skal vera tilbúið til afhendingar innan
mánaðar frá þeim tíma, sem héraðsdómstólnum barst beiðni um það, sbr. þó 4.
mgr.
Við uppkvaðningu dóms skal endurrit af honum þó að öðru
jöfnu vera til reiðu. Það sama á við um viðurlagaákvörðun og úrskurð sem leiðir
mál til lykta.
16. gr.
Í opinberu máli skal afhenda ákæranda tvö endurrit af dómi,
viðurlagaákvörðun eða úrskurði um lok máls til eigin nota og að auki eitt
eintak til að afhenda ákærða, nema honum sé afhent það á dómþingi.
Þegar ákærði er staddur á dómþingi við uppkvaðningu dóms
eða ákvörðun viðurlaga skal ákæranda jafnframt afhent endurrit úr þingbók um
þinghaldið, þar sem kemur fram að ákærði hafi verið viðstaddur og þar með
birtur dómurinn eða ákvörðunin.
17. gr.
Eftir beiðni málsaðila skal héraðsdómstóll gera dómsgerðir
í máli og hafa þær tilbúnar innan mánaðar frá því beiðni barst.
Í dómsgerðum skulu vera:
1. Endurrit af dómi, úrskurði, dómsátt, viðurlagaákvörðun
eða annarri ákvörðun, sem hefur leitt mál til lykta.
2. Endurrit af því sem hefur verið skráð um mál í þingbók,
þar á meðal endurrit af hljóðupptökum.
3. Ljósrit af framlögðum skjölum í máli.
Dómsgerðir skulu heftar saman í eitt eða eftir atvikum
fleiri hefti. Á titilsíðu skal tekið fram að dómsgerðirnar séu í máli með
tilteknu heiti og númeri og á tilteknum fjölda blaðsíðna, en undir dagsetningu
skal dómari rita nafn sitt til staðfestingar á dómsgerðunum. Ef dómsgerðir eru
í tveimur eða fleiri heftum skal hvert þeirra áritað með þessum hætti og tekið
fram hve mörg heftin eru.
VII. KAFLI
Varðveisla skjala
o.fl.
18. gr.
Við hvern héraðsdómstól skal vera geymsla undir skjalasafn
hans. Geymsla skal gerð þannig að aðrir en starfsmenn dómstóls eigi ekki aðgang
að henni og öryggis sé gætt gagnvart hættu af völdum elds og vatns.
Þar til afhending á sér stað til Þjóðskjalasafns skal
varðveita eftirfarandi í skjalasafni héraðsdómstóls:
1. Skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn sem hafa verið lögð
fram í dómsmálum, ásamt endurritum úr þinghöldum sem hafa verið gerð í tengslum
við mál.
2. Þingbækur og dómabækur sem skráningu er lokið í.
3. Eintak af árituðum stefnum samkvæmt 9. gr.
Skjöl og endurrit skv. 1. tölul. 2. mgr. skulu varðveitt út
af fyrir sig vegna hvers máls í möppu eða öskju. Málum skal að jafnaði raða í
samræmi við það, hvenær þeim lýkur.
19. gr.
Hljóðbönd og myndbönd sem hafa verið notuð til upptöku á
dómþingi skal varðveita með tryggum hætti í skjalasafni héraðsdómstóls í minnst
þrjú ár frá þeim tíma sem því máli lauk, sem upptaka varðar. Hafi sama snælda
eða hljóðband verið notað við upptöku í tveimur eða fleiri málum skal það
varðveitt þann tíma frá því síðasta málinu var lokið.
20. gr.
Um afhendingu frumrita eða ljósrita af skjölum, afhendingu
eftirrita af hljóðböndum og myndböndum og aðgang að gögnum í skjalasöfnum
héraðsdómstóla fer að öðru leyti eftir ákvæðum 13. og 14. gr. laga um meðferð
einkamála.
VIII. KAFLI
Gildistaka o.fl.
21. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 18.
gr. og 140. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19 26. mars 1991 og 15. gr.
laga um meðferð einkamála nr. 9131. desember 1991, öðlast gildi 1. júlí 1992.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, 19. júní 1992.
Þorsteinn
Pálsson.
Þorsteinn Geirsson.
Word útgáfa af reglugerð