Sjávarútvegsráðuneyti

224/2006

Reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. - Brottfallin

Felld brott með:

Breytingareglugerðir:

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um vigtun og skráningu alls afla sem landað er hér á landi án tillits til þess hvar hann er veiddur. Þá gilda ákvæði IX. kafla um vigtun og skráningu afla íslenskra skipa sem fluttur er óunninn á erlendan markað.

2. gr.

Skipstjóri fiskiskips ber ábyrgð á að afli skipsins sé veginn samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar. Skipstjóra er skylt að halda afla um borð í skipi sínu aðgreindum eftir tegundum. Verði því ekki viðkomið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Meðafli við veiðar á uppsjávarfiski skal ákvarðaður af vigtunar­leyfishafa sem er móttakandi afla.

Afli skal skráður til aflamarks á veiðiskip. Óheimilt er að flytja afla milli skipa, nema kveðið sé á um annað í reglugerð.

3. gr.

Ökumaður flutningstækis sem flytur afla skal fá afrit af vigtarnótu og afhenda viðtakanda afla. Ökumanni er óheimilt að flytja afla fyrr en hann hefur fengið vigtarnótu afhenta.

4. gr.

Löggiltur vigtarmaður telst vanhæfur ef tengsl hans við hlutaðeigandi fyrirtæki eða forsvarsmenn þess eru til þess fallin að draga megi óhlutdrægni hans í efa með réttu. Þó telst löggiltur vigtarmaður ekki vanhæfur þótt hann sé starfsmaður fiskvinnslu eða fiskmarkaðar þar sem vigtun fer fram, enda eigi hann ekki eignaraðild að rekstrinum. Minniháttar hlutafjáreign í almenningshlutafélagi telst ekki eignaraðild í þessu sambandi.

5. gr.

Afli skal veginn í því ástandi sem hann er í við löndun. Þó er heimilt að vigta þorsk, ýsu og ufsa eftir slægingu í landi enda sé farið að ákvæðum IV. kafla reglugerðar þessarar.

I. KAFLI

Vigtun á hafnarvog.

6. gr.

Allur afli skal veginn á hafnarvog í löndunarhöfn þegar við löndun aflans og skal vigtun afla vera lokið innan tveggja klukkustunda frá því að löndun lauk. Skal við vigtunina nota löggilta vog í eigu viðkomandi hafnar. Vigtun skal framkvæmd af starfsmanni hafnar sem hlotið hefur til þess löggildingu.

Sé hafnarvog ekki í viðkomandi verstöð eða ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi getur Fiskistofa leyft vigtun með öðrum hætti, séu skilyrði sem sett eru í III. kafla eða VI. kafla uppfyllt.

7. gr.

Allur afli skal veginn í ílátum með ís. Hver tegund skal vegin sérstaklega. Löggiltur vigtarmaður á hafnarvog skal skrá á vigtarnótu tegund, fjölda og áætlaða þyngd íláta og draga frá vegnum afla. Vigtarmanni er einnig heimilt að draga allt að 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður.

Frádráttur vegna íss skal tilgreindur á vigtarnótu.

8. gr.

Ökumaður flutningstækis skal láta vigta hverja tegund sérstaklega. Skal hann kynna sér aflasamsetningu farms sem hann flytur, og gefa vigtarmanni réttar upplýsingar þar um og gæta þess að upplýsingar á vigtarnótu gefi rétta mynd af farminum. Jafnframt skal ökumaður gefa vigtarmanni upplýsingar um viðtakanda afla.

9. gr.

Löggiltur vigtarmaður sem jafnframt er starfsmaður hafnar og vigtar aflann, gefur út og undirritar vigtarnótu þar sem eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram:

  1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri.
  2. Löndunarhöfn og löndunardagur.
  3. Nafn seljanda, kaupanda og viðtakanda afla eða eftir atvikum fiskmarkaðar.
  4. Vegið aflamagn, sundurliðað eftir tegundum.
  5. Undirmálsafli.
  6. Fjöldi íláta, gerð og þungi (t.d. kör, kassar, tunnur).
  7. Veiðarfæri.
  8. Sé um að ræða bretti eða palla sem ílátin eru flutt á skal gera grein fyrir fjölda þeirra.
  9. Skrásetningarnúmer flutningstækis og eiginþyngd samkvæmt skráningu í ökutækjaskrá.
  10. Tilgreina skal hvort afli fari til endurvigtunar.
  11. Tilgreina skal hvort óslægður afli, sbr. 5. gr., verði veginn eftir slægingu eða umreiknist í slægðan afla samkvæmt slægingarstuðli sem útgefinn er af sjávarútvegsráðuneytinu.

Upplýsingar samkvæmt vigtarnótu skal hafnarvigtarmaður ávallt skrá í afla­skráningar­kerfi Fiskistofu án ástæðulauss dráttar.

II. KAFLI

Endurvigtun.

10. gr.

Heimilt er Fiskistofu að veita leyfi til að ísaður afli sem vigtaður hefur verið á hafnarvog sé endurvigtaður. Leyfi til endurvigtunar er veitt til heilvigtunar og úrtaksvigtunar afla svo sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

Leyfi til endurvigtunar skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir vigtunarleyfishafa rétt til endurvigtunar sjávarafla í því húsnæði sem tilgreint er í leyfisbréfi og með þeim skilyrðum sem þar er kveðið á um. Leyfið gildir til allt að þriggja ára.

Taki nýr rekstraraðili við rekstri fyrirtækis sem hefur endurvigtunarleyfi skal sá aðili þegar í stað sækja um leyfi til endurvigtunar afla. Á meðan umsókn er til meðferðar hjá stjórnvöldum gildir fyrra leyfi.

11. gr.

Aðili sem óskar eftir leyfi til að vigta afla skal senda skriflega umsókn til Fiskistofu og skal Fiskistofa taka ákvörðun um leyfisveitingu eftir að hafa leitað álits viðkomandi hafnaryfirvalda.

Í umsókninni skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Nafn og kennitala umsækjanda.
  2. Starfsemi umsækjanda.
  3. Staðsetning vinnsluhúss sem vigtun fer fram í.
  4. Nöfn þeirra löggiltu vigtarmanna sem munu vigta aflann og upplýsingar um hvenær þeir hlutu löggildingu. Þá komi fram hjá hverjum hinn löggilti vigtarmaður starfi.
  5. Rekstrarform fyrirtækisins og nöfn aðaleigenda.
  6. Vinnsluleyfisnúmer.
  7. Gerð leyfis sem óskað er eftir þar sem tilgreind er framkvæmd vigtunar á hverri fisktegund.

Með umsókn skal fylgja nákvæm greinargerð um hvernig staðið verði að vigtun og skráningu afla, hvers konar vogir verði notaðar og hvenær þær voru löggiltar. Þar skal gerð grein fyrir því hvernig niðurstöður vigtunar verða notaðar í viðskiptum með sjávarafla og hvernig rekjanleiki þessara upplýsinga verður tryggður.

Fiskistofa skal meta hvort búnaður umsækjanda sé með þeim hætti að unnt verði að fara í hvívetna að reglum sem gilda um vigtun sjávarafla. Uppfylli umsækjandi kröfur sem gerðar eru til vigtunarleyfishafa skal Fiskistofa gefa út leyfi til endurvigtunar afla. Fiskistofa skal tilkynna viðkomandi hafnaryfirvöldum um veitingu leyfa til endurvigtunar afla.

12. gr.

Búnaður til heilvigtunar skal vera með þeim hætti að til staðar sé sjálfvirk vog sem vigtar allan afla með samfelldum hætti.

13. gr.

Búnaður til úrtaksvigtunar skal vera með þeim hætti að vigtarmanni sé kleift að annast vigtun þess afla sem unninn er daglega hjá viðkomandi vigtunarleyfishafa. Fiskistofa skal meta hvort búnaður og aðrar aðstæður hjá umsækjanda séu fullnægjandi og skal í því sambandi m.a. líta til ísskiljubúnaðar, fjölda starfsmanna sem annast vigtun og hvort nægilegt rými sé til vigtunar.

14. gr.

Við heilvigtun skal allur afli veginn. Heimilt er að heilvigta fisk eftir hausun og skal vigta búka og hausa sérstaklega.

Við úrtaksvigtun skal vigta úrtak úr afla sem er ísaður í kassa eða kör í samræmi við reglur sem sjávarútvegsráðuneytið setur um lágmarksúrtak við vigtun. Vigtun afla skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar og notuð skal löggilt vog.

Löggiltur vigtarmaður sem jafnframt er starfsmaður löndunarhafnar getur enn fremur annast endurvigtun afla, enda sé löggilt vog notuð. Löggiltur vigtarmaður sjálfstæðs vigtunarleyfishafa, sbr. VI. kafla, getur einnig annast endurvigtun afla hafi viðkomandi vigtunarleyfishafi annast vigtun aflans við löndun enda fari vigtun fram í húsnæði hans á löggiltri vog eða hjá aðila sem hefur leyfi til endurvigtunar.

15. gr.

Þegar afli er endurvigtaður skal það gert svo fljótt sem verða má og án ástæðulauss dráttar. Vigtarnóta skal send löndunarhöfn strax að vigtun lokinni. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja virkra daga frá löndun aflans þegar afli er úrtaksvigtaður og innan fimm virkra daga þegar afli er heilvigtaður. Vigtarnóta skal þó ávallt send til löndunarhafnar innan tveggja daga þegar afli er veginn eftir slægingu í landi.

Afla sem veginn hefur verið hjá endurvigtunarleyfishafa og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 16. gr.

16. gr.

Löggiltur vigtarmaður sem annast endurvigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem, auk þess sem segir í 9. gr., skal tilgreina eftirfarandi upplýsingar fyrir hverja tegund:

1. Þegar um er að ræða heilvigtun:

  1. Heildarþunga fisks.
  2. Reiknað hlutfall íss í afla. (Brúttóafli, þ.e. afli og ís samkvæmt vigtun á hafnarvog, mínus nettóafli, þ.e. afli án íss við endurvigtun, margfaldað með 100, deilt með brúttóafla.)
  3. Niðurstöðu vigtunar á óslægðum afla eftir því sem við á, sbr. 24. gr.

2. Þegar um er að ræða úrtaksvigtun:

  1. Fjöldi og gerð íláta sem valin eru í úrtak.
  2. Fyrir hvert ílát sem valið er í úrtak skal tilgreina:

    i)

    þunga fisks í hverju íláti

    ii)

    þunga íss í hverju íláti

    iii)

    þunga íláts.

  3. Reiknað hlutfall íss í afla. (Brúttóafli, þ.e. afli og ís samkvæmt vigtun á hafnarvog, mínus nettóafli, þ.e. afli án íss við endurvigtun, margfaldað með 100, deilt með brúttóafla.)

17. gr.

Endurvigtunarleyfishafa, sem hefur heimild til heilvigtunar, er heimilt að fara með afla sem ætlaður er til útflutnings samkvæmt reglum um úrtaksvigtun og skal sá hluti aflans brúttóvigtaður á hafnarvog.

III. KAFLI

Heimavigtun.

18. gr.

Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá vigtun á hafnarvog að uppfylltum skilyrðum kafla þessa enda verði til þess notuð sjálfvirk vog sem vigtar afla með samfelldum hætti. Auk þessa skal vigta hvern fisk sérstaklega þegar um er að ræða bolfisk. Heimilt er að vigta fisk eftir hausun og skal þá vigta hvern búk sérstaklega auk þess sem vigta ber hausa. Þá skal vigtunarbúnaður skrá og geyma upplýsingar um vigtaðan afla síðastliðna tólf mánuði.

Leyfi til heimavigtunar skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir leyfið rétt til vigtunar sjávarafla í því húsnæði sem tilgreint er í leyfisbréfi og með þeim skilyrðum sem þar er kveðið er á um. Í leyfisbréfi skal koma fram hvort leyfið er til heimavigtunar á uppsjávarfiski eða botnfiski. Leyfið gildir til allt að tveggja ára.

Taki nýr rekstraraðili við rekstri fyrirtækis sem hefur heimavigtunarleyfi skal sá aðili þegar í stað sækja um nýtt leyfi til heimavigtunar afla. Á meðan umsókn er til meðferðar hjá stjórnvöldum gildir fyrra leyfi.

Leyfi til heimavigtunar veitir leyfishafa eingöngu heimild til vigtunar á afla sem fyrirhugað er að vinna á vigtunarstað eða seldur er á uppboði hjá fiskmarkaði. Fiskistofa skal tilkynna viðkomandi hafnaryfirvöldum um veitingu leyfa til heimavigtunar afla.

19. gr.

Heimavigtunarleyfi skal aðeins veitt að fenginni jákvæðri umsögn hafnaryfirvalda á viðkomandi löndunarstað. Heimavigtunarleyfi nær aðeins til vigtunar á afla sem landað er á tilteknum löndunarstað, sem tilgreindur er í leyfisbréfi sem Fiskistofa gefur út. Fiskistofa getur bundið heimavigtunarleyfi skilyrðum, s.s. varðandi tegundir og aðferð við vigtun. Heimavigtunarleyfi skal því aðeins veitt að veruleg vandkvæði séu á því að vega aflann á hafnarvog, eftirlit hafnar sé nægilegt og innra eftirlit fyrirtækisins traust auk þess sem vigtunarbúnaður sé löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni. Þá skal Fiskistofa meta hvort búnaður umsækjanda sé með þeim hætti að unnt verði að fara í hvívetna að reglum um vigtun sjávarafla. Aðili sem hefur heimavigtunarleyfi hefur jafnframt leyfi til endurvigtunar, sbr. II. kafla.

Í umsókn um heimavigtunarleyfi skal tilgreina þau atriði sem fram koma í 1. - 7. tl. 11. gr. ásamt rökstuðningi fyrir umsókn um heimavigtunarleyfi.

Með umsókn skal fylgja nákvæm greinargerð um hvernig staðið verði að vigtun og skráningu afla, hvers konar vogir verði notaðar og hvenær þær voru löggiltar. Þar skal gerð grein fyrir hvernig niðurstöður vigtunar eru notaðar í viðskiptum með sjávarafla og hvernig rekjanleiki upplýsinga er tryggður.

Ákvæði 12. gr., 13. gr. og 14. gr. skulu uppfyllt við heimavigtun afla.

20. gr.

Heimavigtunarleyfi má veita vegna löndunar á uppsjávarfiski sem landað er með dælingu afla úr veiðiskipi beint til fiskvinnslu eða í hráefnisgeymslu.

Fiskistofa getur í samráði við viðkomandi löndunarhöfn bundið heimavigtunarleyfi því skilyrði að leyfishafi tryggi að tilkynningar um löndun og áætlaðan afla berist til löndunarhafnar áður en löndun hefst.

21. gr.

Leyfi til heimavigtunar á botnfiski er bundið þeim skilyrðum að leyfishafi tilkynni fyrirfram til hafnar um fyrirhugaða löndun og áætlaðan afla. Þessa er þó ekki þörf hafi skipstjóri þegar sent upplýsingar til löndunarhafnar um áætlað aflamagn flokkað eftir tegundum.

Heimavigtunarleyfishafa er heimilt að fara með afla sem ætlaður er til útflutnings samkvæmt reglum um úrtaksvigtun og skal sá hluti aflans brúttóvigtaður á hafnarvog.

22. gr.

Við heimavigtun afla skal við löndun botnfisks brúttóvigta allan afla og senda vigtarnótu, sbr. 9. gr. til löndunarhafnar án tafar. Þó er heimilt að senda einungis endanlega niðurstöðu vigtunar þegar vigtun farms er lokið innan 24 klukkustunda frá löndun og vigtarnóta er send til löndunarhafnar þegar í stað.

Heimavigtun afla skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar og notuð skal löggilt vog.

Vigtarnóta skal send til viðkomandi löndunarhafnar undirrituð af þeim löggilta vigtarmanni sem sá um vigtunina þegar að vigtun lokinni en þó alltaf innan fimm virkra daga frá löndun aflans og innan tveggja virkra daga þegar afla er landað óslægðum.

Á heimavigtunarnótu skal tilgreina sömu atriði og fram koma í 16. gr.

Afla sem veginn hefur verið hjá heimavigtunarleyfishafa og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 16. gr.

23. gr.

Senda skal Fiskistofu upplýsingar um magn afurða ásamt upplýsingum um nýtingar­hlutfall viðkomandi afurða. Upplýsingarnar skal senda á því formi sem Fiskistofa ákveður eigi síðar en 15. hvers mánaðar, vegna afla sem unninn var undanfarinn mánuð.

IV. KAFLI

Vigtun eftir slægingu í landi.

24. gr.

Fiskistofu er heimilt að veita vigtunarleyfishafa leyfi til að vigta þorsk, ýsu eða ufsa eftir slægingu í landi enda verði til þess notuð sjálfvirk vog sem vigtar afla með samfelldum hætti fyrir og eftir slægingu. Vigtunarbúnaður skal skrá og geyma upplýsingar um vigtaðan afla síðastliðna tólf mánuði.

Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun aflans skal skrá á vigtarnótu, auk upplýsinga sem fram koma í 16. gr., upplýsingar um niðurstöðu vigtunar á óslægðum afla.

Vigtunarleyfishafa sem leyfi hefur til slægingar og vigtunar afla ber ávallt að slægja afla fyrir vigtun hans til skráningar. Það á þó ekki við um fiskmarkaði.

V. KAFLI

Vigtun á fiskmarkaði.

25. gr.

Fiskistofu er heimilt að veita fiskmörkuðum leyfi til endurvigtunar afla, sbr. 10. gr. eða til heimavigtunar afla, sbr. 18. gr. og til vigtunar eftir slægingu í landi, sbr. 1. mgr. 24. gr.

Um umsókn um vigtunarleyfi til fiskmarkaða og veitingu leyfa vísast til ákvæða 11. gr., sbr. 19. gr. og 1. mgr. 24. gr. eftir atvikum.

26. gr.

Um vigtun afla á fiskmarkaði fer skv. ákvæðum II. og III. kafla reglugerðar þessarar um endurvigtun og heimavigtun eftir því sem við á. Fiskmarkaði sem leyfi hefur til heimavigtunar afla er heimilt að fylgja reglum um úrtaksvigtun. Vigtarnóta skal ávallt send til löndunarhafnar þegar að löndun lokinni þó eigi síðar en innan tveggja virkra daga frá löndun aflans.

Fiskmarkaði sem heimild hefur til vigtunar afla eftir slægingu í landi ber að vigta afla í samræmi við upplýsingar á vigtarnótu, sbr. 9. gr., eða tilkynningu skipstjóra þegar um er að ræða heimavigtunarleyfishafa.

Afla sem veginn hefur verið á fiskmarkaði og fluttur er til kaupanda skal fylgja vigtarnóta þar sem fram koma þau atriði sem tilgreind eru í 16. gr.

VI. KAFLI

Vigtun sjálfstæðs aðila.

27. gr.

Fiskistofa getur veitt sjálfstæðum aðilum heimild til að annast vigtun á afla við löndun enda sé hún undir eftirliti og á ábyrgð viðkomandi hafnaryfirvalda.

Leyfið skal bundið við nafn og kennitölu umsækjanda og veitir það vigtunarleyfishafa rétt í samræmi við ákvæði leyfisbréfs til vigtunar sjávarafla við löndun í tiltekinni höfn. Í umsókn skal tilgreina þau atriði sem koma fram í 1. - 6. tl. 11. gr. og með umsókn skal fylgja yfirlýsing hafnaryfirvalda um heimild umsækjanda til vigtunar sjávarafla undir eftirliti og á ábyrgð hafnarinnar. Leyfið gildir til þriggja ára.

Skilyrði fyrir leyfisveitingu er að innra eftirlit vigtunaraðila sé traust, vigtunarbúnaður löggiltur og vigtun framkvæmd af löggiltum vigtarmanni.

28. gr.

Heimild til vigtunar afla í umboði hafnar skal aðeins veitt þeim sem ekki eiga beina eignaraðild að útgerðarfyrirtæki eða fiskvinnslu, né annast eða hafa milligöngu um sölu á afla og ekki hafa slíkra hagsmuna að gæta að draga megi óhlutdrægni þeirra í efa með réttu. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun fyrir slíkan aðila skal uppfylla skilyrði um hæfi sbr. 4. gr.

29. gr.

Vigtun afla sem framkvæmd er af sjálfstæðum aðila á grundvelli sérstaks vigtunarleyfis skal fara fram í samræmi við ákvæði I. kafla. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu, sbr. 9. gr. og senda til viðkomandi hafnar án ástæðulauss dráttar.

VII. KAFLI

Vigtun einstakra tegunda.

Vigtun á grásleppu.

30. gr.

Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 6. gr.

Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara. Við ákvörðun magns hrogna til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við reiknistuðulinn 0,80.

Vigtun á humri.

31. gr.

Humar skal veginn á hafnarvog skv. ákvæðum 6. gr.

Um vigtun á humri sem er vigtaður samkvæmt endurvigtunarleyfi gilda eftirfarandi ákvæði:

  1. Humri, sem kemur slitinn í land, skal hellt í sérbúna ísskilju, ísinn skal fleyttur ofan af og vatn látið síga af humarhölum áður en afli er veginn.
  2. Humar sem slitinn er í landi skal veginn að lokinni afísun áður en honum er pakkað.
  3. Heimilt er að vigta heilan humar í umbúðum þegar að lokinni pökkun. Einungis skal draga þyngd umbúða frá heildarþyngd.

Á vigtarnótu skulu koma fram þau atriði sem tilgreind eru í 16. gr. Um skil á vigtarnótu gilda ákvæði 15. gr.

Vigtun á hörpudiski.

32. gr.

Hörpudiskur skal veginn á hafnarvog skv. ákvæðum 6. gr. Um vigtun hörpudisks gilda að öðru leyti eftirfarandi reglur:

  1. Fari endanleg vigtun fram á hafnarvog er vigtarmanni heimilt að draga allt að 4% frá vegnum afla vegna áætlaðra aðskotahluta í aflanum. Þessi frádráttur skal koma fram á vigtarnótu og er því aðeins leyfður að vigtarmaður á hafnarvog staðfesti með áritun á vigtarnótu að aðskotahlutir hafi verið í aflanum við löndun.
  2. Sé aflinn endurvigtaður hjá endurvigtunarleyfishafa, skal það gert svo fljótt sem við verður komið og með eftirfarandi hætti:
  1. Löggiltur vigtarmaður sem annast skal vigtunina skal velja af handahófi og vigta úrtak sem nemur a.m.k. 0,5% af farmi. Við endurvigtunina skal úrtakið brúttóvigtað síðan skulu hrúðurkarlar, dauðar skeljar og aðrir aðskotahlutir hreinsaðir frá og úrtakið síðan vegið að nýju og þannig fundinn nettóþungi.
  2. Löggiltur vigtarmaður sem annast endurvigtun afla skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem tilgreina skal eftirfarandi atriði:
  • Nafn skips, skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri.
  • Veiðarfæri.
  • Löndunarhöfn og löndunardag.
  • Viðtakanda afla.
  • Fjölda íláta.
  • Brúttóafla á hafnarvog (afli og aðskotahlutir).
  • Brúttóþunga úrtaks.
  • Þunga hrúðurkarla.
  • Þunga annarra aðskotahluta.
  • Nettóþunga úrtaks.
  • Reiknað hlutfall hrúðurkarla og aðskotahluta í afla.
  • Nettóafla (brúttóafli samkvæmt hafnarvog að frádregnum hrúðurkörlum og öðrum aðskotahlutum í afla).

Vigtun á ísaðri rækju.

33. gr.

Ísuð rækja skal vegin á hafnarvog skv. ákvæðum 6. gr.

Um ísaða rækju sem vigtuð er samkvæmt endurvigtunarleyfi gildir eftirfarandi: Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtunina skal velja úrtak í samræmi við reglur sem sjávarútvegsráðuneytið setur um lágmarksúrtak við vigtun og láta það í sérbúna ísskilju. Hitastig vatns í ísskilju skal ekki vera yfir 15°C. Ísinn skal fleyttur ofan af og vatn látið síga af rækjunni í allt að tvær klukkustundir áður en rækjan er vegin.

Rækjufrystiskip.

34. gr.

Vega skal heildarafla af rækju sem er lausfryst í pokum eða fryst í blokkir á hafnarvog skv. 6. gr.

Aðila sem hefur endurvigtunarleyfi er heimilt að endurvigta frysta rækju og skal þá löggiltur vigtarmaður standa að vigtun í samræmi við reglur Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins frá 1. janúar 1990, um aðferð til ákvörðunar á nettóþyngd sjófrystrar rækju.

35. gr.

Forsoðin rækja sem fryst er í öskjur skal ávallt vegin skv. ákvæðum 6. gr. Vigtarmaður á hafnarvog skal draga þyngd umbúða frá vegnu aflamagni.

Hrárækja sem fryst er í öskjur skal ávallt vegin skv. ákvæðum 6. gr. Vigtarmaður á hafnarvog skal draga þyngd umbúða frá vegnu aflamagni. Frá þannig vegnu aflamagni frystrar hrárækju skal síðan draga 10% vegna vatns í afla.

Á vigtarnótu skal tilgreina þau atriði sem fram koma í 42. gr. eftir því sem við á.

36. gr.

Rækju sem veidd er vestan 26°00'V og norðan 65°30'N (á Dohrnbanka) skal haldið aðgreindri frá annarri rækju eða auðkennd og skal hún vegin sérstaklega. Sérstaklega skal getið um þann afla í tilkynningu til Fiskistofu skv. 39. gr.

Vigtun á uppsjávarfiski.

37. gr.

Vigtun uppsjávarfisks sem fer í hráefnisgeymslu fiskmjölsverksmiðju skal fara fram í samræmi við ákvæði 1. mgr. 18. gr.

Vigtun uppsjávarfisks sem fer í vinnslu (frystingu eða söltun) skal fara fram í samræmi við ákvæði 1. mgr. 18. gr. Fiskistofu er heimilt að veita leyfi til vigtunar á pökkuðum afurðum. Vigtun á pökkuðum afurðum skal fara fram á löggiltri vog með eftirfarandi hætti fyrir hverja afurð:

  1. Raunþyngd eininga skal fundin með vigtun á úrtaki. Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtunina skal velja af handahófi a.m.k. 5 einingar á klst. þegar vinnsla fer fram. Á hverjum sólarhring skal vigta a.m.k. 30 einingar en þó er ekki gerð krafa um vigtun á fleiri en 70 einingum af hverri vinnslulínu.
  2. Meðaltal vigtaðrar raunþyngdar eininga, að frádregnum umbúðaþunga, skal fundið og margfaldað með fjölda framleiddra eininga og skal niðurstaðan skráð á vigtarnótu.
  3. Allan afskurð, hausa og slóg skal vigta og skrá sérstaklega á vigtarnótu.

38. gr.

Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun á uppsjávarfiski til vinnslu skal ganga frá og gefa út vigtarnótu þar sem eftirtalin atriði koma fram:

  1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri.
  2. Löndunarhöfn og löndunardagur.
  3. Viðtakandi afla.
  4. Fyrir hverja afurð komi eftirtaldar upplýsingar fram:
    1. Fjöldi framleiddra eininga.
    2. Fjöldi eininga í úrtaki.
    3. Heildarþungi úrtaks.
    4. Nettóþungi úrtaks (heildarþungi að frádregnum þunga bretta, umbúða og íss).
    5. Nettóþungi einingar (nettóþungi úrtaks deilt með fjölda eininga í úrtaki).
    6. Nettóþungi afurðar (nettóþungi einingar margfaldaður með heildarfjölda eininga).

   5. Nettóþungi afskurðar, hausa og slógs.

VIII. KAFLI

Skip er vinna afla um borð.

39. gr.

Skipstjórar skipa er vinna afla um borð frekar en að blóðga, slægja og ísa, skulu strax þegar veiðum er hætt tilkynna Fiskistofu í símskeyti, eða með öðrum hætti sem Fiskistofa viðurkennir, um áætlað magn hverrar afurðar eins nákvæmlega og unnt er ásamt fyrirhuguðum löndunardegi og löndunarstað. Er þeim skylt að landa afurðum sínum á Íslandi.

Þá skulu skipstjórar í lok hverrar veiðiferðar og áður en löndun hefst tilkynna viðkomandi löndunarhöfn skriflega og á því formi sem Fiskistofa ákveður, um áætlaðan fjölda eininga (t.d. kassa og/eða pakkninga) sem landað er af hverri afurð og þunga umbúða hverrar einingar.

Í tilkynningunni skal einnig geta þess hvort einstakar afurðir, aðrar en flök, eru íshúðaðar sérstaklega.

Vigtarmaður skal því aðeins draga frá niðurstöðu vigtunar afurða vegna þyngdar umbúða og sérstakrar íshúðunar sbr. 3. mgr. 40. gr. hafi tilkynning skipstjóra borist löndunarhöfn. Tilkynningar þessar skulu varðveittar hjá löndunarhöfn í samræmi við ákvæði 60. gr. Vigtun afurða skv. þessum kafla skal ætíð framkvæmd af starfsmönnum hafnar, sbr. þó 27. gr.

Afurðir skulu vigtaðar þegar við löndun og skal vigtarnótu skilað til löndunarhafnar þegar að vigtun lokinni.

Einungis er heimilt að landa hluta af tiltekinni afurð vinnsluskips ef allri framleiðslu tiltekinna daga er landað ásamt tilheyrandi nýtingarsýnum.

40. gr.

Löggiltur vigtarmaður skal af handahófi velja það úrtak sem vigta skal þannig að það gefi sem réttasta mynd af afurðinni. Úrtakið skal miðað við áætlun skipstjóra hvað varðar fjölda eininga af viðkomandi afurð og skal vera í samræmi við reglur sem sjávarútvegsráðuneytið setur um lágmarksúrtak við vigtun. Með vigtun úrtaks skal finna meðalþyngd hverrar einingar í viðkomandi afurð.

Við útreikning á afla skal leggja til grundvallar meðalþunga eininga sem teknar voru í úrtak af hverri afurð, þunga umbúða, reglur um ís í umbúðum sbr. 3. mgr. og nýtingarstuðla.

Þegar tekið er tillit til íss í afurðum skal margfalda nettóþunga flaka með 0,98. Heilfrysta grálúðu skal margfalda með 0,97, heilfrystan karfa með 0,96 og lausfryst íshúðuð flök skal margfalda með 0,95. Um frádrátt vegna íss í öðrum afurðum sem sérstaklega eru íshúðaðar fer samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins.

41. gr.

Saltaðar afurðir skulu vegnar skv. ákvæðum 6. gr.

Endurvigtun á saltfiski skal framkvæmd þannig að afurðir sem legið hafa minnst fjóra daga í pækli og teljast full pækilsaltaðar (vatnsinnihald minna en 60%) skulu teknar úr pæklinum og allt laust salt skal slegið af fiskinum. Vigtun afurða fer fram í samræmi við ákvæði II. kafla. Reglur sem sjávarútvegsráðuneytið setur um lágmarksúrtak við vigtun eiga ekki við um saltaðar afurðir.

Við útreikning á afla skal leggja til grundvallar meðalþunga eininga sem teknar voru í úrtak af hverri afurð, þunga umbúða og nýtingarstuðla.

42. gr.

Löggiltur vigtarmaður sem annast vigtun á afurðum skipa skv. þessum kafla skal ganga frá og gefa út vigtarnótu þar sem eftirtalin atriði koma fram:

  1. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri.
  2. Löndunarhöfn og löndunardagur.
  3. Viðtakandi afurða.
  4. Fyrir hverja afurð komi eftirtaldar upplýsingar fram:
    1. Fjöldi eininga skv. talningu við löndun.
    2. Fjöldi eininga í úrtaki.
    3. Heildarþungi úrtaks.
    4. Nettóþungi úrtaks (heildarþungi að frádregnum þunga bretta, umbúða og íss).
    5. Nettóþungi einingar (nettóþungi úrtaks deilt með fjölda eininga í úrtaki).
    6. Nettóþungi afurðar (nettóþungi einingar margfaldaður með heildarfjölda eininga).

.

IX. KAFLI

Vigtun og skýrslugjöf vegna afla sem fluttur er óunninn á markað erlendis.

43. gr.

Óunninn afli samkvæmt þessum kafla er afli sem ekki hefur verið flakaður eða flattur.

44. gr.

Fiskistofa viðurkennir, að fengnu samþykki sjávarútvegsráðuneytis, erlenda uppboðs­markaði sem vigtunarstaði á grundvelli athugana á vigtunaraðferðum, frágangi á vigtarnótum, uppboðsaðferðum og verðmyndun svo og á stærð markaðarins. Ef óunninn afli er seldur á viðurkenndum erlendum uppboðsmarkaði er heimilt að endurvigta hann þar, enda hafi aflinn verið ísaður og frágenginn til útflutnings um borð í veiðiskipi.

45. gr.

Ef löndun, vigtun, uppboð eða skýrslugjöf vegna sölu afla á erlendum markaði er að einhverju leyti í verkahring annarra aðila en viðkomandi markaðar, er viðkomandi aðila óheimilt að annast vigtun eða skýrslugjöf til íslenskra stjórnvalda nema hann hafi fengið leyfi frá Fiskistofu. Fiskistofa getur bundið slíkt leyfi skilyrðum er varða t.d. aðgreiningu afla, merkingar íláta er innihalda afla til sölu á markaði og flutning afla af markaði.

Þeir aðilar sem fengið hafa ofangreint leyfi Fiskistofu til skýrslugjafar, s.s. umboðsmaður eða uppboðsmarkaður erlendis, skulu samdægurs senda til Fiskistofu skýrslur á því formi sem Fiskistofa ákveður, um sölu á afla viðkomandi skips erlendis, þar sem tilgreint er endanlegt magn hverrar fisktegundar, söluverð eftir tegundum og stærðum og skipaskrárnúmer veiðiskips.

46. gr.

Óheimilt er flytja afla sem ekki hefur endanlega verið vigtaður og skráður í afla­skráningar­kerfi Fiskistofu á erlendan markað með flugfrakt.

47. gr.

Sé fyrirhugað að flytja út til sölu á markaði erlendis, óunninn afla sem ekki hefur verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu, skal skipstjóri viðkomandi veiðiskips tryggja að útflutningur afla sé tilkynntur Fiskistofu a.m.k. 24 klukkustundum áður en aflinn fer um borð í farmskip eða 24 klukkustundum áður en skip fer af miðum, sigli veiðiskip með eigin afla.

Tilkynning skal fara fram með þeim hætti að skrá skal á vefsíðu Fiskistofu upplýsingar um veiðiskip, veiðarfæri, aflamagn sundurliðað eftir tegundum og ílátum eins nákvæmlega og unnt er, umboðsmann, sölustað, áætlaðan söludag og eftir atvikum löndunartíma, löndunarstað og brottfarartíma farmskips. Einnig skal skrá nafn, kennitölu og símanúmer útflytjanda. Dreifist afli veiðiskips sem siglir með afla sinn til fleiri söluaðila erlendis skal þess getið sérstaklega.

Vefsíða Fiskistofu skal vera aðgengileg almenningi. Fiskistofa skal vikulega birta upplýsingar á vefsíðu sinni um meðalverð afla íslenskra skipa sem seldur hefur verið á erlendum mörkuðum eftir tegundum og stærðum.

48. gr.

Við útflutning óunnins afla sem ekki hefur verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal hvert ílát vera merkt með nafni veiðiskips og skipaskrárnúmeri. Í hverju íláti skal einungis vera ein fisktegund. Þó er heimilt að fylla ílát með öðrum tegundum hafi hver tegund verið aðskilin og ílátið merkt sérstaklega með upplýsingum um þær tegundir sem í því eru. Aldrei er þó heimilt að flytja út þorsk með öðrum tegundum í sama íláti.

Óheimilt er að flytja út í sama gáminum afla sem endanlega hefur verið vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og afla sem fluttur er til endurvigtunar á viðurkenndan uppboðsmarkað erlendis.

49. gr.

Sé fyrirhugað að flytja út óunninn afla til sölu erlendis sem þegar hefur verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu, skal útflytjandi (umráðamaður viðkomandi afla) tryggja að áður en afli er settur um borð í flutningsfarið sé tilkynnt til Fiskistofu um þau veiðiskip sem veitt hafa umræddan afla og um útflutt aflamagn sundurliðað eftir tegundum eins nákvæmlega og unnt er.

Tilkynning skal fara fram með þeim hætti að skrá skal á vefsíðu Fiskistofu upplýsingar um veiðiskip, veiðarfæri, eiganda afla, aflamagn sundurliðað eftir tegundum og ílátum eins nákvæmlega og unnt er, umboðsmann, sölustað, áætlaðan söludag og eftir atvikum löndunartíma, löndunarstað og brottfarartíma farmskips. Sé afli fluttur út í fleiri en einum gámi skal skrá á vefsíðu tilkynningu um hvern gám.

Útflytjandi (umráðamaður viðkomandi afla) skal tryggja að Fiskistofu séu sendar samdægurs sölunótur vegna sölu erlendis, þar sem tilgreint er endanlegt magn hverrar fisktegundar, söluverð eftir tegundum og stærðum og skipaskrárnúmer veiðiskips.

50. gr.

Allur óunninn afli sem fluttur er út í gámum skal brúttóvigtaður í löndunarhöfn og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Ef afli sem sendur er til endurvigtunar á viðurkenndan uppboðsmarkað erlendis, fer þegar eftir löndun í flutningsfar má brúttóvigta aflann með því að vigta gáminn. Löggiltur vigtarmaður sem jafnframt er starfsmaður hafnar skal gefa út vigtarnótu sbr. 9. gr., sem fylgja skal farmi uns hann er kominn um borð í flutningsfar sem flytur hann á markað erlendis. Á þeirri nótu komi fram sundurliðaðar upplýsingar um afla.

Allur afli sem fluttur er út í gámum skal brúttóvigtaður með því að vigta viðkomandi gám í löndunarhöfn. Afli sem fluttur er í gám utan löndunarhafnar skal brúttóvigtaður með því að vigta viðkomandi gám í útflutningshöfn. Skipstjóri skal ávallt senda viðkomandi hafnarvog upplýsingar um innihald gámsins undirritaðar af skipstjórnarmanni viðkomandi veiðiskips á þar til gerðu eyðublaði sem Fiskistofa lætur í té (Eyðublað um innihald gáms).

Ef ekki er unnt að vega gám á hafnarvog þar sem afla er landað skal brúttóvigta aflann eftir tegundum á hafnarvog áður en aflinn er settur í gáminn.

Verði gámur fylltur smám saman af afla sem senda á til endurvigtunar á viðurkenndan uppboðsmarkað erlendis, þannig að afla er hlaðið oft í gáminn, er óheimilt að setja afla í gáminn eða taka afla úr honum nema að viðstöddum hafnarstarfsmanni. Hafnarstarfsmaður skal læsa gámnum eftir að afli hefur verið settur í hann. Allan afla, sem settur er í gám með þessum hætti, skal áður brúttóvigta eftir tegundum á hafnarvog og skal aflinn strax að vigtun lokinni settur í gáminn.

Afrit af flutningsnótu, ásamt upplýsingum um gámanúmer og eyðublað um innihald gáms, skal hafnarstarfsmaður senda Fiskistofu án ástæðulauss dráttar. Gögnin skulu varðveitt hjá hafnaryfirvöldum.

51. gr.

Flutningafyrirtækjum sem annast flutning á afla á erlendan markað er skylt að senda Fiskistofu farmskýrslur á því formi sem Fiskistofa óskar og eigi síðar en 24 klst. eftir að flutningsfar lætur úr höfn.

X. KAFLI

Eldisfiskur.

52. gr.

Þyngd fisks sem fangaður er til áframeldis skal ákvörðuð við flutning farms í kví og skal beita annarri af eftirfarandi aðferðum:

  1. Heildarmagn fiska skal vegið með viðurkenndri krókavog.
  2. Heildarfjöldi fiska skal talinn og 5% þeirra skulu valin af handahófi en þó að lágmarki 30 fiskar og að hámarki 200 fiskar, og skal það sem þannig velst vegið með löggiltri vog.

Farmur telst það magn fiska sem flutt er í einni ferð í kví.

Vigtun og talning fiska skal framkvæmd af vigtarmanni sem hlotið hefur löggildingu til vigtunar.

Fiskistofa getur heimilað notkun lífmassamælis til ákvörðunar aflamagns. Rekstraraðila ber að tilkynna Fiskistofu um aðferð við ákvörðun aflamagns.

53. gr.

Skipstjóri fiskiskips og rekstraraðili eldisstöðvar bera ábyrgð á því að afli sé veginn í samræmi við reglugerð þessa.

Aðili sem ákvarðar þyngd fisks skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem eftirfarandi atriði skulu koma fram:

  1. Rekstrarleyfisnúmer og auðkenni kvíar.
  2. Nafn skips og skrásetningarnúmer ásamt umdæmisnúmeri.
  3. Dagsetning flutnings fisks.
  4. Nafn og kennitala seljanda og kaupanda fisks.
  5. Veiðarfæri.
  6. Heildarfjöldi fiska og meðalþyngd fiska í úrtaki, sundurliðað eftir tegundum.

Vigtarnóta skal send til viðkomandi hafnar strax að vigtun lokinni.

54. gr.

Við slátrun skal eldisfiskur veginn í samræmi við ákvæði I., II. eða III. kafla reglugerðar þessarar eftir því sem við á.

XI. KAFLI

Hafnaryfirvöld.

55. gr.

Hafnaryfirvöld skulu tryggja að upplýsingar um vigtun landaðs afla, sbr. 9. gr., séu færðar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Skráning afla samkvæmt vigtarnótu vigtunar­leyfis­hafa skal fara fram svo skjótt sem verða má og aldrei síðar en einum virkum degi eftir að vigtarnóta liggur fyrir hjá viðkomandi höfn.

Berist upplýsingar um endurvigtun frá endurvigtunarleyfishafa ekki til löndunarhafnar innan frests sem veittur er til vigtunar skv. 1. mgr. 15. gr. eða berist vigtarnóta frá öðrum aðila en þeim sem tilgreindur var sem viðtakandi aflans við vigtun á hafnarvog, gildir vigtun á hafnarvog, skv. 6. gr.

Berist upplýsingar um nettóvigtun ekki frá heimavigtunarleyfishafa innan frests sem veittur er til að skila vigtarnótu sbr. 3. mgr. 22. gr. skal brúttóvigtun gilda sbr. 1. mgr. 22. gr.

56. gr.

Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa umsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um landaðan afla. Hafnaryfirvöld skulu hafa umsjón með að þeim reglum sem settar hafa verið um vigtun á hverjum löndunarstað sé framfylgt.

Starfsmenn hafnarvoga skulu sannreyna að uppgefin tegund vigtaðs afla sé rétt, m.a. með beinni skoðun úrtaks úr lönduðum afla eftir því sem við á. Sama á við varðandi afla sem gefinn er upp sem undirmálsafli.

Verði hafnaryfirvöld vör við að brotið sé gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skulu þau tilkynna það Fiskistofu.

57. gr.

Hafnaryfirvöld skulu meta hvort upplýsingar sem fram koma á vigtarnótum séu trúverðugar. Telji hafnaryfirvöld upplýsingar sem koma fram á vigtarnótu ótrúverðugar skulu þau tilkynna það Fiskistofu.

XII. KAFLI

Ýmis ákvæði.

58. gr.

Teljist undirmálsafli að hluta utan aflamarks skal honum haldið aðgreindum frá öðrum afla og hann veginn sérstaklega. Löggiltur vigtarmaður skal staðfesta á vigtarnótu hversu mikill undirmálsafli er í hverri veiðiferð.

Allur undirmálsafli seldur óunninn erlendis reiknast að fullu til aflamarks.

59. gr.

Teljist afli utan aflamarks samkvæmt 9. og 10. mgr. 10. gr. laga nr. 38/1990, með síðari breytingum, skal honum haldið aðgreindum frá öðrum afla og hann veginn sérstaklega. Löggiltur vigtarmaður skal staðfesta á vigtarnótu hversu mikill afli þessi er í hverri veiðiferð. Skylt er að landa slíkum afla innanlands á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og skal hann boðinn þar upp. Löggiltur vigtarmaður á uppboðsmarkaði skal fylla út og undirrita vigtarnótu þar sem fram koma upplýsingar sem við eiga og tilgreindar eru í 9. gr. reglugerðar þessarar. Að sölu lokinni skulu forráðamenn uppboðsmarkaðar standa skil á þeim hluta andvirðis, sem rennur til sjóðs, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum, í samræmi við ákvæði laga um stjórn fiskveiða þar um.

Fari sá hluti afla sem reiknast ekki til aflamarks skips samkvæmt ákvæðum 9. mgr. 10. gr. laga nr. 38/1990, með síðari breytingum, yfir 0,5% af uppsjávarafla, eða 5% af öðrum sjávarafla eða ef ekki hefur verið farið að ákvæðum 10. gr. greinar við sölu aflans, skal Fiskistofa endurreikna aflamarksstöðu skipsins þannig að sá hluti aflans skráist til aflamarks viðkomandi skips að fullu.

60. gr.

Fiskistofa getur ákveðið í hvaða formi vigtarnótur skuli vera. Óheimilt er að nota vigtarnótur sem eru í öðru formi en Fiskistofa ákveður. Þá getur Fiskistofa gert kröfu um að allar vigtanir í vigtunarbúnaði endurvigtunarleyfishafa sem vigtar í sífellu, séu skráðar og aðgengilegar eftirlitsmönnum.

Reglur um meðferð og varðveislu bókhaldsgagna gilda um vigtarnótur.

61. gr.

Eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum hafnaryfirvalda er heimill aðgangur að fiskiskipum, flutningsförum, fiskverkunum, fiskmörkuðum og birgðageymslum sem nauðsynlegur er til að vigta afla eða hafa eftirlit með vigtun hans.

62. gr.

Fiskistofa getur, að fenginni umsögn viðkomandi hafnarstjórnar, veitt tímabundna undanþágu frá ákvæðum reglugerðar þessarar um kröfur til vigtunarbúnaðar eða vigtarmanns, enda séu aðstæður þess eðlis að ekki sé unnt að vigta afla nema slík undanþága sé veitt, s.s. bilun í hafnarvog eða forföll löggilts vigtarmanns.

XIII. KAFLI

Viðurlög.

63. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum, samkvæmt VI. kafla laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og IV. kafla laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Þá er Fiskistofu heimilt að afturkalla vigtunarleyfi vinnslustöðva, fiskmarkaða eða annarra aðila sem fengið hafa vigtunarleyfi, sé ekki af þeirra hálfu farið að ákvæðum reglugerðar þessarar. Einnig getur Fiskistofa afturkallað viðurkenningu sína á erlendum uppboðsmarkaði, eða svipt aðila leyfi til að annast vigtun afla og skýrslugjöf vegna afla sem fluttur er á markað erlendis brjóti hann gegn ákvæðum leyfisbréfs eða reglugerðar þessarar.

Sjávarútvegsráðuneytinu er heimilt, að fengnum tillögum Fiskistofu, að svipta uppboðsmarkað fyrir sjávarafla rekstrarleyfi samkvæmt lögum um það efni ef markaður eða þeir sem í þágu hans starfa hafa brotið gegn ákvæðum III. kafla laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar eða reglugerð þessari.

64. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, til þess að öðlast gildi 1. september 2006. Reglugerð þessi birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 522, 18. ágúst 1998, um vigtun sjávarafla með síðari breytingum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 14. mars 2006.

Einar K. Guðfinnsson.

Vilhjálmur Egilsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica