Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

210/2003

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 148 1. mars 2000, með síðari breytingum.

1. gr.

3. mgr. 5. gr., sbr. reglugerð nr. 837 26. október 2001, orðist svo:
Draga skal vikulega og eigi sjaldnar en fjórum sinnum í mánuði í hverjum flokki, en þó ekki oftar en 52 sinnum á happdrættisárinu.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16 13. apríl 1973, sbr. lög nr. 53 25. maí 1976, lög nr. 24 26. mars 1987 og lög nr. 21 17. apríl 1997, um breyting á þeim lögum, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 13. mars 2003.

F. h. r.
Björn Friðfinnsson.

Fanney Óskarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.