REGLUGERÐ
um Jöfnunarsjóð
sókna.
1. gr.
Kirkjuráð hinnar íslensku þjóðkirkju hefur á hendi umsjá og
stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og ber á honum ábyrgð.
2. gr.
Hlutverk Jöfnunarsjóðs sókna er:
1. Að veita styrki til þeirra kirkna, sem hafa sérstöðu
umfram aðrar sóknarkirkjur, þannig að þær vegna sögulegra eða annarra sérstakra
ástæðna geta talist kirkjur alls landsins. Er hér fyrst og fremst átt við
Dómkirkjuna í Reykjavík, Hóladómkirkju, Skálholtsdómkirkju, Hallgrímskirkju í
Reykjavík og Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Veita má styrki til rekstrar, viðhalds og endurbóta nefndra
kirkna, svo og til kaupa, endurnýjunar og viðhalds á nauðsynlegum búnaði
þeirra, til viðbótar þeim styrkjum, sem veittir kunna að verða úr ríkissjóði.
Heimilt er að veita allt að 30% af ráðstöfunarfé sjóðsins
til þessa liðar.
2. Að leitast við að jafna aðstöðu sókna og styrkja sóknir,
þar sem tekjur skv. lögum um sóknargjöld, nægja ekki fyrir nauðsynlegum
útgjöldum að dómi sóknarnefndar og sóknarprests og að fenginni umsögn
héraðsnefndar.
Heimilt er að veita styrki samkvæmt þessari grein til
nauðsynlegra verklegra framkvæmda á vegum sókna, til að styrkja rekstur kirkna,
t.d. til kaupa á nauðsynlegum búnaði þeirra og til að styðja kirkjulegt starf
innan sókna. Ennfremur er heimilt að veita styrki til að greiða fyrir
sameiningu fámennra sókna, sbr. 3. gr. laga nr. 25/1985 og til að styrkja
sóknir, sem bera sérstakan kostnað skv. 8. gr. sömu laga.
Með styrkjum til verklegra framkvæmda er átt við framlög
til viðhalds, endurbóta og nýbygginga kirkna. Ennfremur styrki til byggingar
þjónusturýmis og safnaðarheimila, þar sem þeirra er þörf.
Heimilt er að veita allt að 60% af ráðstöfunartekjum
sjóðsins til þessa töluliðar.
3. Að veita styrki til að auðvelda stofnun sókna í nýjum
byggðahverfum og greiða fyrir kirkjulegu starfi þar.
Heimilt er að veita allt að 15% af ráðstöfunartekjum
sjóðsins til þessa liðar.
4. Að styrkja safnaðaruppbyggingu og aðra kirkjulega
félags- og menningarstarfsemi innan sókna eða prófastsdæma og veita
héraðssjóðum styrki til verkefna, er undir þá falla, sbr. 8. gr. laga um
sóknargjöld.
Einnig er heimilt skv. þessum lið að veita styrki til
kirkjulegrar félags- og menningarstarfsemi og verkefna, sem þjóðkirkjan í heild
eða einstakar stofnanir hennar standa fyrir. Ennfremur að styrkja landssamtök,
sem eiga rétt á að tilnefna fulltrúa á leikmannastefnu kirkjunnar.
Við mat á styrkveitingum til héraðssjóða, skal m.a. höfð
hliðsjón af því, hvort þeir fullnýti tekjustofna sína, sbr. 8. gr. laga um
sóknargjöld.
Heimilt er að veita allt að 15% af ráðstöfunarfé sjóðsins
til þessa liðar.
3. gr.
Kirkjuráð semur árlega fjárhagsáætlun fyrir sjóðinn. Áætlun
um úthlutun og fjárhag skal kynnt dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir lok
maímánaðar ár hvert. Áætlun skal einnig kynnt kirkjuþingi.
4. gr.
Umsóknir um framlög úr Jöfnunarsjóði sókna skulu berast
biskupsstofu fyrir 15. mars ár hvert og skal stjórn sjóðsins hafa lokið
úthlutun fyrir 1. maí sama ár. Umsóknir skulu rökstuddar og þeim skulu fylgja
greinargerðir, þar sem m.a. skal gera grein fyrir fjárþörf og þeim verkefnum,
sem sótt er um styrk til.
Umsóknir um styrki til nýbygginga kirkna og annarra
fjárfrekra famkvæmda skulu að jafnaði berast sjóðnum áður en hafist er handa um
framkvæmdir. Umsóknum eiga að fylgja nákvæmar kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir,
ásamt teikningum. Stjórn jöfnunarsjóðs getur leitað álits sérfróðra aðila um
fyrirhugaðar framkvæmdir, sérstaklega ef það hefur ekki þegar verið gert.
Heimilt er að veita greiðsluloforð til allt að fjögurra ára.
5. gr.
Jöfnunarsjóði er heimilt með samþykki biskups og dóms- og
kirkjumálaráðuneytis, að taka lán og endurlána eða ábyrgjast greiðslu lána,
vegna verkefna, sem sjóðnum er ætlað að sinna.
6. gr.
Biskupsstofa fer með reikningshald Jöfnunarsjóðs sókna.
Heimilt er með samþykki dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að greiða af óskiptum
tekjum sjóðsins kostnað vegna stjórnunar og bókhalds.
Ríkisendurskoðun endurskoðar bókhald sjóðsins.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga um
sóknargjöld o.fl., nr. 91 frá 29. des. 1987, öðlast þegar gildi.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, I1. apríl 1991.
Óli Þ.
Guðbjartsson.
Anna G.
Björnsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð