REGLUGERÐ
um starfsábyrgðartryggingar lögmanna.
1. gr.
Ábyrgðartrygging sem lögmanni er
skylt að hafa samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga um lögmenn, nr. 77/1998, skal að lágmarki
vera kr. 15.850.000 vegna hvers tryggingartímabils.
Heimilt er að ákveða hámark eigin
áhættu vátryggingartaka allt að kr. 5.000.000 vegna einstaks tjónsatburðar.
2. gr.
Lögmaður uppfyllir
tryggingarskyldu sína annað hvort með því að kaupa vátryggingu hjá
vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi eða með ábyrgðartryggingu
banka eða sparisjóðs sem hefur starfsleyfi samkvæmt 4. gr. laga um
viðskiptabanka og sparisjóði, nr. 113/1996, eða erlends banka eða sparisjóðs
sem hefur útibú eða starfsstöð hér á landi í samræmi við ákvæði XI. kafla laga
nr. 113/1996.
3. gr.
Þegar tveir eða fleiri lögmenn
starfa saman með sameiginlega starfsstofu teljast þeir fullnægja
tryggingarskyldu sinni með því að leggja fram sameiginlega tryggingu enda sé
lögð fyrir Lögmannafélag Íslands yfirlýsing um óskipta bótaábyrgð. Lágmark skal
þá hækka um 10% fyrir hvern lögmann umfram einn.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er
samkvæmt 25. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, öðlast þegar gildi. Jafnframt
falla úr gildi reglur um starfsábyrgðartryggingar lögmanna nr. 657/1995.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 15. mars 1999.
Þorsteinn Pálsson.
Björn Friðfinnsson.
Word útgáfa af reglugerð