|
|
198/2002
felld brott með rg. nr. 520/2009
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 735/1997 um ungbarnablöndur og stoðblöndur.
1. gr. Liður 5.3, Önnur steinefni í viðauka II, Samsetning stoðblandna verður svohljóðandi:
5.3. Önnur steinefni.
Styrkleikinn er að minnsta kosti sá sami og venjulega er í kúamjólk, minnkaður þar sem við á, í sama hlutfalli og próteinstyrkleiki stoðblandnanna gagnvart próteinstyrkleika kúamjólkur. Dæmigerð samsetning kúamjólkur er sýnd til leiðbeiningar í viðauka VI.
2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Reglugerðin er sett með hliðsjón af II. viðauka, XII. kafla EES samningsins (tilskipun 91/321/EEC og 96/4/EB). Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 727/2001 um breytingu á reglugerð nr. 735/1997 um ungbarnablöndur og stoðblöndur.
Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 13. mars 2002.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson. Sigríður Stefánsdóttir.
Stofnreglugerð: 735/1997 - Reglugerð um ungbarnablöndur og stoðblöndur
|