REGLUGERÐ
um
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
1. gr.
Sinfóníuhljómsveit Íslands er sjálfstæð stofnun með
sérstakan fjárhag og lýtur sérstakri stjórn. Heimili hennar og varnarþing er í
Reykjavík. Málefni hennar heyra undir menntamálaráðuneytið.
2. gr.
Starf Sinfóníuhljómsveitarinnar miði að því að auðga
tónmenningu Íslendinga, efla áhuga og þekkingu á æðri tónlist og gefa
landsmönnum kost á að njóta hennar, m.a. með tónleikahaldi sem víðast um landið
og með tónlistarflutningi í hljóðvarpi og sjónvarpi. Sérstaka áherslu ber að
leggja á flutning og kynningu íslenskrar tónlistar, utan lands sem innan, ef
tilefni gefast.
Í öllu starfi hljómsveitarinnar skal kappkosta að hafa sem
best samstarf við þá aðila sem að skyldum markmiðum vinna, einkum aðra íslenska
flytjendur tónlistar, einstaklinga, hópa og stofnanir.
3. gr.
Tengja ber starf hljómsveitarinnar tónlistaruppeldi í
landinu svo sem kostur er, einkum tónlistarkennslu á háskólastigi. Efla ber
samstarf við tónlistarskólana og auðvelda nemendum þeirra að sækja tónleika
hljómsveitarinnar. Hljómsveitin skal vinna markvisst að tónlistarkynningu meðal
annarra skólanema og styðja tónlistarstarfsemi æskufólks eftir því sem aðstæður
leyfa.
4. gr.
Hljómleikaferðir um landið skulu vera fastur liður í
starfsemi hljómsveitarinnar. Í því sambandi er æskilegt að leita
samstarfs við tónlistarfélög og aðra aðila á hverjum stað um tónleikahaldið.
5. gr.
Rekstraraðilar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru: Ríkissjóður
(56%), Ríkisútvarpið (25%), Borgarsjóður Reykjavíkur (18%) og Bæjarsjóður
Seltjarnarness (1%). Með samþykki rekstraraðila getur menntamálaráðuneytið
heimilað fleiri sveitarfélögum aðild að rekstri hljómsveitarinnar.
6. gr.
Samningur sé gerður milli Sinfóníuhljómsveitarinnar og
Ríkisútvarpsins um réttindi Ríkisútvarpsins varðandi flutning á tónlistarefni
hljómsveitarinnar á móti framlagi útvarpsins skv. 5. gr. og í samningnum miðað
við þá hefð og venjur sem í þeim efnum hafa mótast á undanförnum árum.
Efna má til samvinnu á viðskiptagrundvelli milli
Sinfóníuhljómsveitarinnar annars vegar og Þjóðleikhússins, Íslensku óperunnar,
Íslenska dansflokksins og annarra aðila hins vegar um einstök verkefni eftir
því sem tilefni gefast og önnur starfsemi hljómsveitarinnar leyfir. Skal um
slíka samvinnu gera skriflega samninga hverju sinni.
Sinfóníuhljómsveitin skal kappkosta að afla tekna af
tónleikahaldi og annarri starfsemi, svo að sem mest að útgjöldum
hljómsveitarinnar fáist greitt af slíkum tekjum hennar.
Tekjur af auglýsingum má leggja í sérstakan sjóð sem stjórn
hljómsveitarinnar getur ráðstafað til kaupa á hljóðfærum og annarra sérstakra
þarfa.
7. gr.
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands er skipuð af
menntamálaráðuneytinu til fjögurra ára í senn. Hún er skipuð fimm mönnum, einum
tilnefndum af Reykjavíkurborg, einum tilnefndum af starfsmannafélagi
hljómsveitarinnar, einum tilnefndum af fjármálaráðuneytinu og einum tilnefndum
af Ríkisútvarpinu. Menntamálaráðuneytið skipar formann án tilnefningar.
Stjórnin hefur ákvörðunarvald um öll málefni
hljómsveitarinnar. Hún heldur fundi svo oft sem þurfa þykir.
8. gr.
Stjórnin ber ábyrgð á fjárreiðum og reikningshaldi
hljómsveitarinnar. Hún lætur gera starfs- og rekstaráætlanir og leggur þær
fyrir rekstraraðila. Efnahags- og rekstrarreikningur skal gerður að loknu
hverju almanaksári og sendur ríkisendurskoðun.
Í reikningshaldi hljómsveitarinnar skal kostnaði við
tónleikaferðir um landið haldið aðskildum frá öðrum rekstrarkostnaði. Gera skal
sérstaka fjárhagsáætlun vegna ferðanna. Hluti skemmtanaskatts (10%) samkvæmt 7.
gr. laga nr. 58/1970 um skemmtanaskatt rennur til greiðslu kostnaðar vegna
ferðanna.
9. gr.
Stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar ræður framkvæmdastjóra til
fjögurra ára í senn og ákveður verksvið hans. Endurráðning er heimil.
Framkvæmdastjóri situr stjórnarfundi hljómsveitarinnar og
hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Hann framkvæmir ákvarðanir stjórnarinnar og
ber ábyrgð gagnvart henni.
10. gr.
Framkvæmdastjóri skipuleggur og gerir tillögur um
heildarstarfsáætlun hljómsveitarinnar í samráði við aðalhljómsveitarstjóra,
sbr. 14. gr. Hann er ábyrgur fyrir framkvæmd og undirbúningi æfinga og tónleika
hljómsveitarinnar. Sama á við um hver þau tilvik önnur, þar sem hljómsveitin
eða deildir úr henni koma saman til starfa.
Framkvæmdastjóri ræður, í samræmi við fjárheimildir,
starfsfólk á skrifstofu og aðstoðarfólk við æfingar, tónleika og nótnavörslu.
Hann setur hljóðfæraleikurum starfsreglur, með samþykki stjórnar, og gefur út
aðrar reglur, svo og starfslýsingar einstakra starfsmanna, eftir því sem þurfa
þykir. Leitast skal við að móta slíkar reglur í sem nánustu samráði við
hlutaðeigandi starfsmenn og aðalhljómsveitarstjóra eftir því sem við á.
11. gr.
Stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar ræður
aðalhljómsveitarstjóra. Hann vinnur að tillögum um viðfangsefni sveitarinnar í
samvinnu við verkefnavalsnefnd og framkvæmdastjóra. Nánari ákvæði um verksvið
aðalhljómsveitarstjóra skulu tilgreind í starfssamningi.
Stjórnin ræður einnig aðra fasta hljómsveitarstjóra.
12. gr.
Tónleikastjóri er ráðinn af framkvæmdastjóra með samþykki
stjórnar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hann er staðgengill framkvæmdastjóra og
ábyrgur gagnvart honum fyrir þeim málum sem honum eru falin og undir hann
heyra.
13. gr.
Stjórnin fastræður hljóðfæraleikara, að fengnum tillögum
framkvæmdastjóra, í minnst 65 stöðugildi. Heimilt er að ráða í hlutastörf. Aðra
hljóðfæraleikara ræður stjórnin á sama hátt eftir því sem viðfangsefni
krefjast, enda hafi viðfangsefnið verið samþykkt í fjárhagsáætlun. Um ráðningu
hljómsveitarmanna og framkvæmd hæfnisprófa skal fara eftir reglum sem stjórn
hljómsveitarinnar setur.
Um launakjör og vinnutíma starfsmanna hljómsveitarinnar fer
eftir kjarasamningum þeirra við fjármálaráðherra.
14. gr.
Við verkefnaval Sinfóníuhljómsveitar Íslands skal stjórn
hennar njóta aðstoðar verkefnavalsnefndar sem skipuð er til fjögurra ára um
leið og stjórn hljómsveitarinnar.
Nefndin skilar tillögum og áætlunum um verkefni
hljómsveitarinnar fyrir hvert starfsár, svo og tillögum um stjórnendur,
einleikara og söngvara, eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Framkvæmdastjóri og
aðalhljómsveitarstjóri gera starfsáætlun á grundvelli tillagna
verkefnavalsnefndar og í samráði við hana og leggja fram ásamt kostnaðaráætlun
fyrir stjórnina eigi síðar en 1. febrúar. Fyrir 1. mars skulu liggja fyrir drög
að verkefnavali þess starfsárs sem hefst á öðru eftirfarandi hausti, nægilega
ítarleg til að leggja megi þau til grundvallar fjárlagatillögum fyrir næsta
reikningsár (almanaksár).
15. gr.
Heimilt er að ráða tónskáld til starfa í þágu hljómsveitarinnar
í takmarkaðan tíma, eigi skemur en þrjá mánuði og eigi lengur en eitt ár í
senn, eftir ákvörðun stjórnarinnar. Auglýsa skal eftir umsóknum um slíka
ráðningu, og skal hún bundin ákveðnu verki sem unnið skal á ráðningartímanum.
Til þessa má verja sem svarar tólf mánaðarlaunum á ári hverju.
16. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 11. gr. laga um
Sinfóníuhljómsveit Íslands nr. 36/1982 og öðlast þegar gildi. Jafnframt er
felld úr gildi reglugerð nr. 203/1987 um Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Menntamálaráðuneytið,
18. apríl 1991.
Svavar Gestsson.
Árni Gunnarsson.
Word útgáfa af reglugerð