Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

196/1985
REGLUGERÐ
varðandi afmörkun landgrunnsins til vesturs, í suður og til austurs.
1. gr.
Landgrunnið er afmarkað svo sem sýnt er á mynd 1.
2. gr.
Hnit markalínunnar utan 200 sjómílna eru sýnd í töflu 1.
Ákvæði 76. gr. Hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna eru lögð til grundvallar, þar sem við á til að ákveða þessi mörk.
3. gr.
Einstakir liðir markanna skv. 2. gr. eru þannig:
Liður ABC er miðlína milli Íslands og Færeyja.
Liður CD er 200 sjómílna fjarlægð frá Færeyjum, Stóra-Bretlandi og Írlandi.
Liður DEF er um 60 sjómílna fjarlægð frá brekkufæti.
Liður FGH er 3S0 sjómílna fjarlægð frá Íslandi. Ef mörk landgrunnsins eru hér miðuð við brekkufót mundu þau ná lengra en 350 sjómílur. En þar sem brekkufótur á þessu svæði er á neðansjávarhrygg Reykjaness eru mörkin miðuð við 350 sjómílur frá Íslandi samkvæmt 76. gr.
Liður HIJ er 200 sjómílna mörk Grænlands.
Liður JK er miðlína Íslands og Grænlands.
4. gr.
Mörk þau sem sýnd eru á mynd 1 og hnit í töflu 1 eru háð ±5 sjómílna skekkju.
5. gr.
Leita ber samkomulags milli Íslands og annarra hlutaðeigandi landa um endanlega afmörkun landgrunnsins í samræmi við almennar reglur þjóðaréttar.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 41 frá 1. júní 1979 um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn og tekur þegar gildi.
Utanríkisráðuneytið, 9. maí 1985.

Geir Hallgrímsson.
Ingvi S. Ingvarsson.
TAFLA 1.
Afmörkun landgrunnsins utan 200 sjómílna.
J 63°19'N 30°52'W
62°40'N 32°30'W
I 62°12'N 34°08'W
H 61°34'N 34°55'W
60°56'N 34°00'W
60°17'N 33°00'W
59°41'N 31°00'W
59°10'N 31°00'W
G 58°52'N 30°08'W
58°40'N 29°00'W
58°24'N 28°00'W
58°13'N 27°00'W
58°08'N 26°00'W
57°57'N 25°00'W
F 57°48'N 24°00'W
57°12'N 25°00'W
56°34'N 26°00'W
56°00'N 26°42'W
55°00'N 27°34'W
54°00'N 27°50'W
53°04'N 27°00'W
52°52'N 26°00'W
53°06'N 25°00'W
53°28'N 23°30'W
52°36'N 23°12'W
52°00'N 22°40'W
51°00'N 21°32'W
50°00'N 20°32'W
49°48'N 20°00'W
E 49°48'N 19°00'W
50°00'N 18°25'W
51°00'N 17°50'W
52°00'N 17°45'W
53°00'N 17°30'W
53°21'N 17°00'W
D 53°56'N 15°58'W




Word útgáfa af reglugerð
196-1985.doc - 196-1985.doc


 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt