Sjávarútvegsráðuneyti

194/2001

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu án skilju á Vestfjarðamiðum. - Brottfallin

194/2001

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með fiskibotnvörpu án skilju á Vestfjarðamiðum.

1. gr.

Allar veiðar með fiskivörpu eru bannaðar á svæðum á Vestfjarðamiðum sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 66°5400 N – 24°3900 V
2. 66°5399 N – 24°3524 V
3. 66°4613 N – 24°4250 V
4. 66°4100 N – 24°4200 V
5. 66°1400 N – 25°3800 V
6. 66°1096 N – 25°5017 V
7. 66°1382 N – 25°5941 V
8. 66°3400 N – 25°0800 V


Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru þó veiðar heimilar, sé varpan búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 486, 4. ágúst 1998, um gerð og búnað smáfiskaskilju.


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 15. mars 2001 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. mars 2001.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica