REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og
hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.
1. gr.
Eftir 3. málsl. í 2. tölulið
viðauka 9 bætist nýr málsliður sem orðast svo:
Framangreind ákvæði um ósekkjaða
og ópakkaða vöru í fljótandi eða föstu formi eiga þó ekki við um sjóflutning á
hrásykri og fljótandi fitum og olíum, samkvæmt því sem fram kemur í viðauka 10.
2. gr.
Við reglugerðina bætist nýr
viðauki, viðauki 10, sem orðast svo:
Viðauki 10.
Nánari ákvæði um flutninga.
A.
Um sjóflutning á hrásykri.
1. Að eftirfarndi skilyrðum
uppfylltum er leyfilegt að flytja hrásykur, sem aðeins á að nota sem matvæli
eða sem hráefni í matvæli að undangenginni hreinsun, í ílátum, gámum eða tönkum
sem ekki eru eingöngu ætluð fyrir matvæli:
a) ílát, gáma og tanka skal
hreinsa vandlega áður en þau eru notuð undir hrásykurfarm;
b) síðasti farmur má ekki hafa
verið vökvi.
2. Matvælafyrirtæki sem ber
ábyrgð á flutningi hrásykursins skal skrá nákvæma lýsingu á síðasta farmi sem
fluttur var í ílátunum, gámunum eða tönkunum. Einnig skal skrá hvernig staðið
var að hreinsun þeirra og hversu árangursrík hreinsunin var.
Skjöl þessa efnis skulu fylgja
farminum til sykurhreinsunarstöðvar og skal afriti af þeim haldið eftir þar. Á
skjölunum skal eftirfarandi merking einnig koma fram, á einu eða fleiri
tungumálumEES ríkjanna: Þessa vöru þarf að hreinsa áður en hún er notuð til
manneldis.
Ef beiðni um slíkt kemur fram ber
þeim aðila sem er ábyrgur fyrir flutningi og/eða hreinsun hrásykursins að
afhenda opinberum eftirlitsaðila ofangreind skjöl.
3. Hrásykur, sem fluttur er
með framangreindum hætti, skal gangast undir fullnægjandi hreinsun áður en hann
er notaður til manneldis.
Matvælafyrirtæki sem ber ábyrgð á
flutningi og hreinsun hrásykursins skal líta á hreinsun íláta, gáma og tanka
sem þýðingarmikinn þátt í öryggi og gæðum sykursins.
B.
Um sjóflutning á fljótandi fitum og olíum.
1. Að eftirfarandi
skilyrðum uppfylltum eru sjóflutningar, á fljótandi fitum og olíum sem
meðhöndla á frekar og eru ætlaðar eða líklegt er að verði notaðar til
manneldis, leyfilegir í tönkum sem ekki eru einvörðungu ætlaðir til flutninga á
matvælum:
a) ef fitan eða olían er flutt í tanki úr ryðfríu stáli eða
tanki sem er klæddur að innan með epoxýresíni eða efni, sem er tæknilega
sambærilegt, skal sá farmur sem síðast var fluttur vera matvæli eða farmur úr
listanum yfir leyfilega fyrri farma
b) ef fitan eða olían er flutt í tanki úr öðrum efnum en
þeim sem um getur í a-lið skal sá farmur, sem fluttur var í tönkunum þrjú næstu
skipti á undan, vera matvæli eða farmur úr listanum yfir leyfilega fyrri farma.
2. Að eftirfarandi
skilyrðum uppfylltum eru sjóflutningar, á fljótandi fitum og olíum sem ekki á
að meðhöndla frekar og eru ætlaðar eða er líklegt að verði notaðar til
manneldis, leyfilegir í tönkum sem ekki eru einvörðungu ætlaðir til flutninga á
matvælum:
a) að tankurinn sé úr ryðfríu stáli eða klæddur að
innan með epoxýresíni eða efni sem er tæknilega sambærilegt;
b) að sá farmur, sem fluttur var
í tönkunum þrjú næstu skipti á undan, hafi verið matvæli.
3. Skipstjóri sem flytur
fljótandi fitur og olíur sem eru ætlaðar eða líklegt er að verði notaðar til
manneldis, skal hafa undir höndum skjalfestar upplýsingar um þann farm sem var
fluttur í viðkomandi tönkum þrjú næstu skipti á undan og skilvirkni þeirra
hreinsunaraðgerða sem fóru fram milli þessara farmflutninga.
4. Hafi farmi verið
umskipað skal skipstjóri á móttökuskipinu hafa undir höndum, til viðbótar við
upplýsingarnar í tölulið 3, nákvæmar skjalfestar upplýsingar þess efnis að
flutningur á fljótandi fitum og olíum hafi verið í samræmi við ákvæði í
töluliðum 1 eða 2 hér að framan meðan á fyrri flutningi stóð.
5. Ef beiðni um slíkt kemur
fram ber skipstjóra skipsins að láta opinberum eftirlitsaðila í té skjalfestu
upplýsingarnar sem lýst er í töluliðum 3 og 4.
Listi yfir leyfilega fyrri farma.
|
Efni
|
CAS- númer
|
|
Ediksýra -
(etansýra)
|
64-19-7
|
|
Aseton -
(própanon; dímetýlketon)
|
67-64-1
|
|
Súrar olíur og
fitusýrueimi - úr jurtaolíum og fitum og/eða blöndum
|
|
|
þeirra, svo og
fita og olíur af dýrum.
|
|
|
Ammóníumhýdroxíð
- (ammóníumhýdrat; ammóníakslausn; ammóníaksvatn)
|
1336-21-6
|
|
Olíur og fitur
unnar úr dýrum og jurtum (þó ekki olía úr kasúhnetum og hrá furuolía)
|
|
|
Bývax
|
8012-89-3
|
|
Bensýlalkóhól
(aðeins NF og hreinleiki hvarfefna)
|
100-51-6
|
|
Bútýlasetöt:
n-bútýlasetat
|
123-86-4
|
|
sec-bútýlasetat
|
105-46-4
|
|
tert-bútýlasetat
|
540-88-5
|
|
Kalsíumklóríðlausn
|
10043-52-4
|
|
Kalsíumlignósúlfónat
|
|
|
Kandelillavax
|
8006-44-8
|
|
Karnaubavax -
(Brasilíuvax)
|
8015-86-9
|
|
Sýklóhexan -
(hexametýlen; hexanaften; hexalhýdróbensen)
|
110-82-7
|
|
Sýklóhexanól -
(hexahýdrófenól)
|
108-93-0
|
|
Epoxuð
sojabaunaolía (oxíran-súrefnisinnihald minnst 7%)
|
8013-07-8
|
|
Etanól -
(etýlalkóhól)
|
64-17-5
|
|
Etýlasetat -
(ediksýruetýlester)
|
141-78-6
|
|
2-etýlhexanól -
(2-etýlhexýlalkóhól)
|
104-76-7
|
|
Fitusýrur
|
|
|
Smjörsýra -
(bútansýra)
|
107-92-6
|
|
Valerínsýra -
(pentansýra)
|
109-52-4
|
|
Kaprónsýra -
(hexansýra)
|
142-62-1
|
|
Heptansýra
|
111-14-8
|
|
Kaprýlsýra -
(oktansýra)
|
124-07-2
|
|
Pelargónsýra -
(nónansýra)
|
112-05-0
|
|
Kaprínsýra -
(dekansýra)
|
334-48-5
|
|
Lárínsýra -
(dódekansýra)
|
143-07-7
|
|
Efni
|
CAS- númer
|
|
Láróleínsýra -
(dódekensýra)
|
4998-71-4
|
|
Mýristínsýra -
(tetradekansýra)
|
544-63-8
|
|
Mýristóleínsýra
- (tetradekensýra)
|
544-64-9
|
|
Palmitínsýra -
(hexadekansýra)
|
57-10-3
|
|
Palmitóleínsýra
- (cis-9-hexadekensýra)
|
373-49-9
|
|
Sterínsýra -
(oktadekansýra)
|
57-11-4
|
|
Rísínólsýra -
(cis-12-hýdroxýoktadek-9-ensýra)
|
141-22-0
|
|
Olíusýra -
(oktadekensýra)
|
112-80-1
|
|
Línólsýra -
(9,12-oktadekadíensýra)
|
60-33-3
|
|
Línólensýra -
(9,12,15-oktadekatríensýra)
|
463-40-1
|
|
Arakínsýra -
(eikósansýra)
|
506-30-9
|
|
Behensýra -
(dókósansýra)
|
112-85-6
|
|
Erúkasýra -
(cis-13-dókósensýra)
|
112-86-7
|
|
Fitualkóhól -
náttúrleg alkóhól
|
|
|
Bútýlalkóhól -
(1-bútanól)
|
71-36-3
|
|
Kapróýlalkóhól
- (1-hexanól)
|
111-27-3
|
|
Enantýlalkóhól
- (1-heptanól)
|
110-70-6
|
|
Kaprýlalkóhól -
(1-oktanól)
|
111-87-5
|
|
Nónýlalkóhól -
(1-nónanól)
|
143-08-8
|
|
Dekýlalkóhól -
(1-dekanól)
|
112-30-1
|
|
Lárýlalkóhól -
(1-dódekanól)
|
112-53-8
|
|
Trídekýlalkóhól
- (1-trídekanól)
|
27458-92-0
|
|
Mýristýlalkóhól
- (1-tetradekanól)
|
112-72-1
|
|
Setýlalkóhól -
(1-hexadekanól)
|
36653-82-4
|
|
Sterýlalkóhól -
(1-oktadekanól)
|
112-92-5
|
|
Óleýlalkóhól -
(oktadekanól)
|
143-28-2
|
|
Lárýlmýristýlalkóhól
- (blanda af C12-C14)
|
|
|
Setýlstearýlalkóhól
- (blanda af C16-C18)
|
|
|
Fitusýruesterar
- allir esterar myndaðir með samsetningu einhverrar af framangreindum
|
|
|
fitusýrum og
einhvers af framangreindum fitualkóhólum. Dæmi: bútýlmýristat,
|
|
|
óleýlpalmítat
og setýlsterat
|
|
|
Metýlesterar af
fitusýrum
|
|
|
Dódekansýrumetylester
- (metýldódekanat)
|
111-82-0
|
|
Hexadekansýrumetylester
- (metýlhexadekanat)
|
112-39-0
|
|
Oktadekansýrumetylester
- (metýloktadekanat)
|
112-61-8
|
|
Oktadekensýrumetylester
- (metýloktadekenat)
|
112-62-9
|
|
Maurasýra -
(metansýra)
|
64-18-6
|
|
Glýseról -
(própantríól, glýserín)
|
56-81-5
|
|
Glýkól
|
|
|
Bútandíól:
1,3-bútandíól
|
107-88-0
|
|
- 1,4-bútandíól
|
110-63-4
|
|
- 2,3-bútandíól
|
513-85-9
|
|
Pólýprópýlenglýkól
(mólþungi yfir 400)
|
25322-69-4
|
|
Própýlenglýkól
- (1,2 própýlenglýkól; 1,2-própandíól; 1,2-díhýdroxýprópan;
|
57-55-6
|
|
mónóprópýlenglýkól
(MPG); metýlglýkól)
|
|
|
1,3-própýlenglýkól
- (trímetýlenglýkól; 1,3-própandíól)
|
504-63-2
|
|
n-heptan
|
142-82-5
|
|
n-hexan: hreint
|
110-54-3
|
|
til
iðnaðar (teknískt)
|
64742-49-0
|
|
Ísóbútýlalkóhól
- (2-metýl-1-própanól)
|
78-83-1
|
|
Ísóbútýlasetat
- (ediksýruísóbútýlester)
|
110-19-0
|
|
Efni
|
CAS- númer
|
|
Ísódekýlalkóhól
- (ísódekanól)
|
25339-17-7
|
|
Ísónónýlalkóhól
- (ísónónanól)
|
27458-94-2
|
|
Ísóoktýlalkóhól
- (ísóoktanól)
|
26952-21-6
|
|
Ísóprópýlalkóhól
- (IPA; 2-própanól; ísóprópanól)
|
67-63-0
|
|
Límónen -
(dípenten)
|
138-86-3
|
|
Magnesíumklóríðlausn
|
7786-30-3
|
|
Metanól -
(metýlalkóhól)
|
67-56-1
|
|
Bútanon -
(metýletýlketon)
|
78-93-3
|
|
4-metýl-2-pentanon
- (metýlísóbútýlketon)
|
108-10-1
|
|
Metýl-tert.-bútýleter
- (MTBE)
|
1634-04-4
|
|
Kísill (míkró)
|
7631-86-9
|
|
Melassi
|
57-50-1
|
|
Montanvax
|
8002-53-7
|
|
Nónan
|
111-84-2
|
|
Paraffín
(neysluhæft hvað hreinleika varðar)
|
|
|
Pentan
|
109-66-0
|
|
Fosfórsýra -
(ortófosfórsýra)
|
7664-38-2
|
|
Drykkjarhæft
vatn (ef farmur sem fluttur var næst þar á undan er á þessum lista)
|
|
|
Kalíumhýdroxíð
|
1310-58-3
|
|
Própýlasetat -
(ediksýruprópýlester)
|
109-60-4
|
|
Natríumhýdroxíð
- (vítissódi)
|
1310-73-2
|
|
Sorbítól -
(D-sorbítól)
|
50-70-4
|
|
Brennisteinssýra
|
7664-93-9
|
|
Þvagefnisammóníumnítratlausn
- (UAN)
|
|
|
Víndreggjar
|
868-14-4
|
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð
18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum
samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla, II.
viðauka, tilskipanir 96/3/EB og 98/28/EB. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 10. mars 1999.
Guðmundur Bjarnason.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð