Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

188/2001

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 168/2000 um skilyrði fyrir
löggildingu iðnmeistara samkvæmt 10. tölul. í ákvæði
til bráðabirgða laga nr. 73/1997, með síðari breytingum.

1. gr.
Í stað orðanna „1. júlí 2001“ í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. september 2001.


2. gr.
2. málsliður 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í nefndinni eiga sæti fulltrúi tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, fulltrúi tilnefndur af Skipulagsstofnun, fulltrúi tilnefndur af Meistarafélagi húsasmiða, fulltrúi án tilnefningar sem skal vera formaður og jafn margir varamenn.


3. gr.
11. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: A.m.k. 5 kennslustundir í lausn verkefna, þar sem þátttakendur sanna kunnáttu sína í ofangreindum atriðum. Skal það gert í samráði við nefnd skv. 2. gr.


4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 10. tölul. í ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 73/1997 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.


Umhverfisráðuneytinu, 8. mars 2001.

Siv Friðleifsdóttir.
Magnús Jóhannesson.

    nr 188 2001.doc
Stofnreglugerð:
168/2000 - Reglugerð um skilyrði fyrir löggildingu iðnmeistara samkvæmt 10. tölul. í ákvæði til bráðabirgða laga nr. 73/1997, með síðari breytingum.

 

Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
Prentvænt