Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

184/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 136/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2075/2005 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti, auk áorðinna breytinga. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2010, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1245/2007 frá 24. október 2007 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2075/2005 að því varðar notkun á fljótandi pepsíni til að greina tríkínu í kjöti.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1245/2007 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 15. desember 2011, bls. 190.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica