Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

181/2006

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um innleiðingu
alþjóðlegra reikningsskilastaðla (II).



1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10b í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2004, frá 3. desember 2004, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 707/2004 frá 6. apríl 2004 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002.


2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 707/2004 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2004, sbr. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (I) nr. 180/2006.


3.gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi og skal gilda fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2005 eða síðar.


Fjármálaráðuneytinu, 27. janúar 2006.


F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Elmar Hallgríms.
B_nr_181_2006.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt