Umhverfisráðuneyti

177/1998

Reglugerð um bann við notkun tiltekinna eiturefna og hættulegra efna. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um bann við notkun tiltekinna eiturefna og hættulegra efna.

1. gr.

Markmið.

                Markmið reglugerðar þessarar er að takmarka notkun tiltekinna efna og vörutegunda sem geta verið hættuleg heilsu manna eða skaðað umhverfið.

2. gr.

Gildissvið.

                Ákvæði reglugerðar þessarar taka til neðantalinna efna:

1)             Eftirfarandi efna sem flokkast sem "Eitur" (T) eða "Sterkt eitur" (Tx) samkvæmt reglugerð nr. 236/1990 um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda, sem innihalda slík efni, ásamt síðari breytingum:

a)             Krabbameinsvaldandi efna sem fá hættusetninguna H 45: "Getur valdið krabbameini" eða hættusetninguna H 49: "Getur valdið krabbameini við innöndun", sjá 1. viðauka.

b)            Efna sem geta valdið stökkbreytingum og fá hættusetninguna H 46: "Getur valdið arfgengum skaða", sjá 2. viðauka.

c)             Efna sem geta haft skaðleg áhrif á æxlun og fá hættusetninguna H 60: "Getur dregið úr frjósemi" eða hættusetninguna H 61: "Getur skaðað barn í móðurkviði", sjá 3. viðauka.

2)             Lífrænna leysiefna - klórefnasambanda, sjá 4. viðauka.

3)             Tiltekinna varnarefna og efna til nota í málmiðnaði, sjá 5. viðauka.

4)             Annarra hættulegra efna, sjá 6. viðauka.

5)             Úðabrúsa, sem í eru efni sem flokkast sem "Eitur" (T) eða "Sterkt eitur" (Tx).

3. gr.

Efni sem geta valdið krabbameini,

stökkbreytingum og skaðlegum áhrifum á æxlun.

                Óheimilt er að dreifa á almennum markaði efnum samkvæmt 1. tölul. 2. gr. og vörutegundum sem í eru þessi efni í þeim styrk að varan flokkist sem "Eitur" (T) eða "Sterkt eitur" (Tx) samkvæmt flokkunarreglum í reglugerð nr. 236/1990, með síðari breytingum. Umbúðir viðkomandi efna og vörutegunda skulu, auk annarra lögbundinna merkinga, merktar eftirfarandi áletrun með skýru og óafmáanlegu letri: "Notist einungis af fagmönnum. Varúð - forðist snertingu eða innöndun - leitið sérstakra leiðbeininga fyrir notkun".

                Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um lyf, sjá lög nr. 93/1994, snyrtivörur, sjá reglugerð nr. 690/1994, eldsneyti, sjá 8. gr reglugerðar nr. 137/1987 og málningu til listiðkunar.

4. gr.

Lífræn leysiefni - klórefnasambönd.

                Óheimilt er að dreifa á almennum markaði lífrænum leysiefnum sem talin eru upp í 4. viðauka og vörutegundum sem í eru þessi efni, í styrk sem er jafn eða meiri en 0,1%1). Einnig er óheimilt að nota viðkomandi efni í fyrirtækjum þar sem þau geta auðveldlega dreifst út í umhverfið, t.d. við yfirborðshreinsun eða efnahreinsun. Umbúðir viðkomandi efna og vörutegunda skulu, auk annarra lögbundinna merkinga, merktar eftirfarandi áletrun með skýru og óafmáanlegu letri: "Eingöngu til nota í iðnaði."

                Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um lyf, sjá lög nr. 93/1994, og snyrtivörur, sjá reglugerð nr. 690/1994.

5. gr.

Varnarefni og efni til nota í málmiðnaði.

                Óheimilt er að flytja inn, selja eða nota sem varnarefni í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar meindýra, efni sem talin eru upp í A-hluta 5. viðauka.

                Óheimilt er að nota efni í B-hluta 5. viðauka í málmiðnaði.

6. gr.

Önnur hættuleg efni.

                Óheimilt er að flytja inn, selja eða nota efni eða vörutegundir sem innihalda 0,1% eða meira af efnum sem talin eru upp í 6. viðauka.

                Bann samkvæmt 1. mgr. gildir ekki um dí-µ-oxó-dí-n-bútýltinhýdroxýbóran (DBB), ef það er notað við framleiðslu annarrar vöru þannig að innihald DBB í fullunninni vöru verði minna en 0,1%.

                Bannið varðandi pentaklórfenól tekur ekki til meðhöndlunar viðar, sbr. þó 5. gr. reglugerðar nr. .../1998 um notkun og bann við notkun tiltekinna efna í málningu og viðarvörn né heldur um meðhöndlun trefja og slitþolinna textílefna í iðnaði, sbr. þó 4. gr. reglugerðar nr. 448/1996 um notkun og bann við notkun tiltekinna efna við meðhöndlun á textílvörum, ásamt síðari breytingum.

                Ákvæði þessarar greinar taka ekki til úrgangs. Úrgangur, sem inniheldur viðkomandi efni, fellur undir mengunarvarnareglugerð.

7. gr.

Úðabrúsar.

                Í úðabrúsum, sem ætlaðir eru til dreifingar á almennum markaði, mega ekki vera efni sem flokkast sem "Eitur" (T) eða "Sterkt eitur" (Tx) samkvæmt reglugerð nr. 236/1990, með síðari breytingum, ef samanlagt magn þeirra er umfram 0,1%, nema það sé sérstaklega leyft samkvæmt öðrum reglugerðum eða lögum.

8. gr.

Eftirlit.

                Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, hefur eftirlit með framkvæmd þessarar reglugerðar að öðru leyti en því sem fellur undir lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

9. gr.

Málsmeðferð og viðurlög.

                Um mál er rísa kunna út af brotum á reglum þessum fer að hætti opinberra mála. Um viðurlög fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, ásamt síðari breytingum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

10. gr.

Gildistaka.

                Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, ásamt síðari breytingum svo og lögum nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum.

                Einnig er höfð hliðsjón af ákvæðum 4. tl., XV. kafla, II. viðauka, samningsins um Evrópskt efnahagssvæði. (Tilskipun 76/769/EBE um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi takmörkun á sölu og notkun tiltekinna skaðlegra efna og efnablandna, ásamt breytingum í tilskipunum 89/677/EBE, 91/173/EBE, 94/60/EB, 96/55/EB, 97/10/EB og 97/16/EB.)

                Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 449/1996 um bann við notkun tiltekinna eiturefna og hættulegra efna og 1. mgr. 10. gr. reglugerðar nr. 137/1987 um notkun og bann við notkun tiltekinna eiturefna og hættulegra efna.

Umhverfisráðuneytinu, 16. mars 1998.

Guðmundur Bjarnason.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

 

1. VIÐAUKI

Krabbameinsvaldandi efni.

A-hluti. 1. flokkur.

Í 1. flokki eru efni sem vitað er að valda krabbameini í mönnum.

Efnaheiti                CAS

nr.2)       

4-amínóbífenýl

92-67-1

4-amínóbífenýlsölt

---

arsenoxíð

1303-28-2

arsenpentoxíð

1303-28-2

arsensýra og sölt hennar

---

arsentríoxíð

1327-53-3

asbest

132207-33-1

 

132207-32-0

 

12172-73-5

 

77536-66-4

 

77536-68-6

 

77536-67-5

benzen

71-43-2

benzidín

92-87-5

benzidínsölt

---

bis(klórmetýl)eter

542-88-1

bífenýl-4,4'-ýlendíamín

92-87-5

bífenýl-4-ýlamín  

92-67-1

bífenýl-4-ýlamínsölt

---

4,4'-díamínóbífenýl

92-87-5

díarsentríoxíð

1327-53-3

dínikkeltríoxíð

1314-06-3

eriónít

12510-42-8

klórdímetýleter

107-30-2

klóretýlen

75-01-4

klórmetýlmetýleter

107-30-2

krómtríoxíð

1333-82-0

2-naftýlamín

91-59-8

ß-naftýlamín

91-59-8

2-naftýlamínsölt

---

nikkeldíoxíð

12035-36-8

nikkelmónoxíð

1313-99-1

nikkelsubsúlfíð

12035-72-2

nikkelsúlfíð

16812-54-7

sinkkrómöt, þar með talið sinkkalíumkrómat

---

trínikkeldísúlfíð

12035-72-2

vinýlklóríð            

75-01-4

xenýlamín

92-67-1

xenýlamínsölt

---

                                                                                                                                                                                                               

B-hluti. 2. flokkur

Í 2. flokki eru efni sem eru sterklega grunuð um að valda krabbameini í mönnum.

Efnaheiti                CAS

nr.          

akrýlamíð

79-06-1

akrýlónítríl

107-13-1

4-amínóazóbenzen

60-09-3

o-amínóazótólúen (AAT)

97-56-3

4-amínó-2', 3-dímetýlazóbenzen

97-56-3

4-amínó-3-flúorfenól

399-95-1

o-anisidín

90-04-0

aziridín  

151-56-4

benzóaantrasen

56-55-3

benzóeasefenantrýlen

205-99-2

benzóbflúoranten

205-99-2

benzójflúoranten

205-82-3

benzókflúoranten

207-08-9

benzód,e,fkrýsen

50-32-8

benzóapýren

50-32-8

benzótríklóríð       

98-07-7

beryllíum

7440-41-7

beryllíumsambönd að undanskildum álberyllíumsilikötum

---

1,3-bútadíen

106-99-0

4,4'-díamínódífenýlmetan

101-77-9

o-díanisidín

119-90-4

o-díanisidínsölt

---

díazómetan

334-88-3

díbenza,hantrasen

53-70-3

1,2-díbróm-3-klórprópan

96-12-8

díetýlsúlfat

64-67-5

1,2-dífenýlhýdrazín

122-66-7

3,3'-dímetýlbenzidín

119-93-7

1,2-dímetýlhýdrazín

540-73-8

dímetýlkarbamoýlklóríð

79-44-7

dímetýlsúlfat

77-78-1

3,3'-díklórbenzidín

91-94-1

3,3'-díklórbenzidínsölt

---

3,3'-díklórbífenýl-4,4'-ýlendíamín

91-94-1

3,3'-díklórbífenýl-4,4'-ýlendíamínsölt

---

1,4-díklórbút-2-en

764-41-0

1,2-díklóretan

107-06-2

2,4-díklórfenýl-4-nítrófenýleter

1836-75-5

2,2'-díklór-4,4'-metýlendíanilín

101-14-4

2,2'-díklór-4,4'-metýlendíanilínsölt

---

1,3-díklór-2-própanól

96-23-1

3,3'-dímetoxýbenzidín

119-90-4

3,3'-dímetoxýbenzidínsölt

---

3,3'-dímetýlbenzidín

119-93-7

3,3'-dímetýlbenzidínsölt

---

N,N-dímetýlhýdrazín

57-14-7

dímetýlnítrósamín               

62-75-9

dímetýlsúlfamoýlklóríð       

13360-57-1

dínatríum-{5[(4'-((2,6-hýdroxý-3-((2-hýdroxý-5- súlfófenýl)azó)fenýl)azó)(1,1'-bífenýl)-4-ýl)- azó]salísýlató(4-)}-kúprat(2-)

16071-86-6

Direct Brown 95 (C.I.)         

16071-86-6

epíklórhýdrín

106-89-8

(epoxýetýl)benzen

96-09-3

1,2-epoxýprópan

75-56-9

etýlendíklóríð

107-06-2

etýlenimín             

151-56-4

etýlenoxíð

75-21-8

etýlkarbamat        

51-79-6

fenýloxíran

96-09-3

hexaklórbenzen    

118-74-1

hexametýlfosfóramíð

680-31-9

hexametýlfosfórtríamíð

680-31-9

hýdrazín

302-01-2

hýdrazóbenzen

122-66-7

kadmíumklóríð

10108-64-2

kadmíumkrómat

13765-19-0

kadmíumoxíð

1306-19-0

kadmíumsúlfat     

10124-36-4

kalíumbrómat

7758-01-2

kaptafól (ISO)

2425-06-1

karbadox (INN)

6804-07-5

2-klórallýldíetýldítíókarbamat

95-06-7

1-klór-2,3-epoxýprópan

106-89-8

kolvetni, C26-55-, arómatrík

97722-04-8

króm(III)krómat    

24613-89-6

2-metoxýanilín

90-04-0

2- (metoxýkarbónýlhýdrazónómetýl)kínoxalín-1,4-díoxíð

6804-07-5

metýlakrýlamíðómetoxýasetat           

(£ 0,1% akrýlamíð)

77402-03-0

2-metýlaziridín     

75-55-8

metýlazoxýmetýlasetat

592-62-1

(metýl-ONN-azoxý)metýlasetat

592-62-1

4,4'-metýlenbis(2-klóranilín)

101-14-4

4,4'-metýlenbis(2-klóranilín)sölt

---

4,4'-metýlendíanilín

101-77-9

4,4'-metýlendí-o-tólúidín

838-88-0

4-metýl-m-fenýlendíamín

95-80-7

metýl-3-(kínoxalín-2-ýlmetýlen)- karbazat-1,4-díoxíð

6804-07-5

1-metýl-3-nítró-1-nítrósógúanidín    

70-25-7

metýloxíran           

75-56-9

5-nítróasenaften

602-87-9

4-nítróbífenýl

92-93-3

nítrófen (ISO)

1836-75-5

2-nítrónaftalen

581-89-5

2-nítróprópan

79-46-9

N-nítrósódímetýlamín

62-75-9

nítrósódíprópýlamín

621-64-7

2,2'-(nítrósóimínó)bisetanól

1116-54-7

oxíran

75-21-8

3-própanólíð

57-57-8

1,3-própansulton

1120-71-4

1,3-própíólakton

57-57-8

própýlenimín

75-55-8

própýlenoxíð

75-56-9

strontíumkrómat

7789-06-2

súlfallat (ISO)

95-06-7

stýrenoxíð

96-09-3

1,2,3,6-tetrahýdró-N-(1,1,2,2-tetraklóretýltíó)- talimíð

2425-06-1

tíóasetamíð           

62-55-5

o-tólidín

119-93-7

o-tólidínsölt

---

o-tólúidín

95-53-4

4-o-tólýlazó-o-tólúidín

97-56-3

a,a,a-tríklórtólúen

98-07-7

úretan (INN)

51-79-6

útdráttur úr jarðolíu, eimað léttnafta-leysiefni

64742-03-6

útdráttur úr jarðolíu, eimað léttparaffín-leysiefni

64742-05-8

útdráttur úr jarðolíu, eimað þungnafta-leysiefni

64742-11-6

útdráttur úr jarðolíu, eimað þungparaffín-leysiefni

64742-04-7

útdráttur úr jarðolíu, léttvakúm gasolíu-leysiefni

91995-78-7

                                                                                                               

                                 

2. VIÐAUKI

Efni sem geta valdið stökkbreytingum.

A-hluti. 1. flokkur

Í 1. flokki eru efni sem vitað er að geta valdið stökkbreytingum hjá mönnum.

Engin efni eru í þessum hluta.

B-hluti. 2. flokkur

Í 2. flokki eru efni sem eru sterklega grunuð um að valda stökkbreytingum hjá mönnum.

Efnaheiti                CAS

nr.          

akrýlamíð

79-06-1

aziridín  

151-56-4

benzóapýren

50-32-8

benzód,e,fkrýsen

50-32-8

1,2-díbróm-3-klórprópan

96-12-8

díetýlsúlfat

64-67-5

etýlenimín

151-56-4

etýlenoxíð

75-21-8

hexametýlfosfóramíð

680-31-9

hexametýlfosfórtríamíð

680-31-9

metýlakrýlamíðómetoxýasetat

(£ 0,1% akrýlamíð)

77402-03-0

oxíran

75-21-8

               

3. VIÐAUKI

Efni sem geta haft skaðleg áhrif á æxlun.

A-hluti. 1. flokkur

Í 1. flokki eru efni sem vitað er að geta haft skaðleg áhrif á æxlun.

Efnaheiti                CAS

nr.          

blýalkýlsambönd

---

blýasetat

1335-32-6

blýazíð

13424-46-9

blýdí(asetat)

301-04-2

blýhexaflúorsilíkat               

25808-74-6

blýkrómat

7758-97-6

blý(II)metansúlfónat

17570-76-2

blýsambönd að undanskildum þeim sem tilgreind eru annars staðar í þessum viðauka

---

blýstyfnat             

15245-44-0

blý-2,4,6-trínítróresorsínoxíð

15245-44-0

4-hýdroxý-3-(3-oxó-1-fenýlbútýl)kúmarín

81-81-2

tríblýbis(ortófosfat)

7446-27-7

varfarín

81-81-2

                                                                                                                               

                                                                B-hluti. 2. flokkur

Í 2. flokki eru efni sem eru sterklega grunuð um að hafa skaðleg áhrif á æxlun.

Efnaheiti                CAS

nr.          

benzóapýren

50-32-8

benzód,e,fkrýsen

50-32-8

bínapakrýl (ISO)

485-31-4

6-sek-bútýl-2,4-dínítrófenól

88-85-7

2-sek-bútýl-4,6-dínítrófenýl-3- metýlkrótónat

485-31-4

2-tert-bútýl-4,6-dínítrófenól

1420-07-1

2,4-díklórfenýl-4-nítrófenýleter

1836-75-6

dímetýlformamíð

68-12-2

N,N-dímetýlformamíð

68-12-2

dínóseb

88-85-7

dínóseb, sölt og esterar að undanskildum þeim sem

tilgreindir eru annars staðar í þessum viðauka

---

dínóterb

1420-07-1

dínóterb, sölt og esterar

---

2-etoxýetanól

110-80-5

2-etoxýetýlasetat

111-15-9

etýlenglýkólmónóetýleter

110-80-5

etýlenglýkólmónómetýleter

109-86-4

etýlentíóþvagefni

96-45-7

etýlglýkólasetat   

111-15-9

2-etýlhexýl-3,5-bis(1,1-dímetýletýl)-4-

hýdroxýfenýlmetýltíóasetat

80387-97-9

imídazólidín-2-tíon

96-45-7

2-imídazólín-2-tíól

96-45-7

2-metoxýetanól

109-86-4

2-metoxýetýlasetat

110-49-6

metýlazoxýmetýlasetat

592-62-1

(metýl-ONN-azoxý)metýlasetat

592-62-1

metýlglýkólasetat

110-49-6

nikkeltetrakarbónýl

13463-39-3

nítrófen (ISO)

1836-75-6

                               

                                                                                4. VIÐAUKI

Lífræn leysiefni - klórefnasambönd.

Efnaheiti                CAS

nr.          

1,1-díklóretýlen

75-35-4

klóróform

67-66-3

koltetraklóríð

56-23-5

pentaklóretan

76-01-7

1,1,1,2-tetraklóretan

630-20-6

1,1,2,2,-tetraklóretan

79-34-5

1,1,1-tríklóretan

71-55-6

1,1,2-tríklóretan

79-00-5

                                                                                               

                                 

5. VIÐAUKI

Varnarefni og efni til nota í málmiðnaði.

A-hluti. Varnarefni.

Efnaheiti                CAS

nr.          

aldrin     

309-00-2

DDT

50-29-3

1,2-díbrómetan (EDB)

106-93-4

díeldrin  

60-57-1

endrin    

72-20-8

heptaklór

76-44-8

hexaklórbenzen

118-74-1

kamfeklór

8001-35-2

klórdan

57-74-9

kvikasilfurssambönd

---

mirex      

2385-85-5

toxafen

8001-35-2

                                                                                                                               

B-hluti. Efni til nota í málmiðnaði.

Efnaheiti               

CAS nr.

Hexaklóretan        

67-72-1

6. VIÐAUKI

Önnur hættuleg efni.

Efnaheiti                CAS

nr.          

dí-µ-oxó-dí-n-bútýltinhýdroxýbóran (DBB)

75113-37-0

díbútýltinbórat

75113-37-0

pentaklórfenól, sölt þess og esterar

87-86-5

               

               

                 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica