Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

177/1997

Reglugerð um breyting á reglugerð um gæsluvarðhaldsvist nr. 179/1992. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um gæsluvarðhaldsvist nr. 179/1992.

1. gr.

1. mgr. 44. gr. orðist svo:

Gæsluvarðhaldsfangi tekur á móti heimsóknum í heimsóknarherbergi, sé slíkt herbergi fyrir hendi, en ella tekur hann á móti heimsóknum í klefa sínum eða í öðru herbergi.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 108. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19 26. mars 1991 og í 30. gr. laga um fangelsi og fangavist nr. 48 19. maí 1988 öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 4. mars 1997.

Þorsteinn Pálsson.

Hjalti Zóphóníasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica