REGLUGERÐ
um skilyrði fyrir löggildingu
iðnmeistara samkvæmt 10 tölul.
í ákvæði til bráðabirgða laga nr.
73/1997, með síðari breytingum.
1. gr.
Þeir
einstaklingar sem fengu útgefið eða áttu rétt á að fá útgefið meistarabréf
fyrir 1. janúar 1989 og ekki hafa lokið meistaraskóla eiga rétt á löggildingu
til að bera ábyrgð á verkframkvæmdum fyrir byggingarnefnd eftir að hafa sótt
námskeið eins og greinir í reglugerð þessari, enda sæki þeir um slíka
löggildingu fyrir 1. júlí 2001.
2. gr.
Umhverfisráðherra
skipar nefnd til að hafa yfirstjórn með námskeiðum. Í nefndinni eiga sæti
fulltrúi tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, fulltrúi tilnefndur af
Skipulagsstofnun, fulltrúi án tilnefningar sem skal vera formaður og jafn
margir varamenn. Nefndin stendur fyrir gerð námskeiða, útgáfu sérstaks
námsefnis og ræður kennara. Nefndin getur að fengnu samþykki
umhverfisráðuneytisins falið viðurkenndum aðila námskeiðshaldið en skal eigi að
síður hafa eftirlit með því.
3. gr.
Námskeið
skulu auglýst rækilega með hæfilegum fyrirvara s.s. í dagblöðum og staðarblöðum
þar sem það á við. Halda skal námskeið eftir þörfum en við það skal miðað að
ekki séu færri en 15 þátttakendur á hverju námskeiði að öðrum kosti getur
nefndin ákveðið að sameina námskeið.
Á
námskeiðunum skal farið í eftirfarandi atriði:
1)
Skipulags- og byggingarlög og reglugerðir settar samkvæmt þeim.
2)
ÍST 30 og notkun hans.
3)
Útboð, tilboð og verksamningsgerð.
4)
Samskipti aðal- og undirverktaka.
5)
Iðnaðarlög.
6)
Stofnun félaga og ábyrgð stjórnarmanna félaga.
7)
Gæðastjórnun.
8)
Öryggismál.
9)
Kostnað við útselda tíma.
10)
Helsta mun á verktaka og launþega og vinnuveitendaábyrgð.
11)
A.m.k. 5 kennslustundir í lausn raunhæfs verkefnis.
Námskeiðin
skulu vera 45 kennslustundir að lengd. Skylt er að sitja allt námskeiðið að
öðrum kosti eiga þátttakendur ekki rétt á löggildingu.
4. gr.
Þátttakendur
skulu greiða námskeiðsgjald sem skal greitt þegar skráning á námskeið fer fram.
Upphæð námskeiðsgjalds skal ekki vera hærri en kostnaður við námskeiðshald.
Fjárhæð
námskeiðsgjalds skal ákveðin af umhverfisráðuneytinu hverju sinni, að fenginni
tillögu nefndarinnar sbr. 2. gr.
Heimilt
er að endurgreiða námskeiðsgjald verði ekki af námskeiði eða mæli sérstakar
ástæður með því.
5. gr.
Reglugerð
þessi er sett samkvæmt heimild í 10. tölulið í ákvæði til bráðabirgða í lögum
nr. 73/1997 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 3. mars
2000.
Siv Friðleifsdóttir.
Ingimar Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð