Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

162/2006
REGLUGERÐ
um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár.


I. KAFLI
Gjaldtaka fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár.
1. gr.
Ríkisskattstjóri skal taka gjald fyrir skráningu í fyrirtækjaskrá, hlutafélagaskrá, samvinnufélagaskrá o.fl. og fyrir vottorð og afhendingu upplýsinga úr skránum eftir því sem nánar er kveðið á um í þessum kafla.


2. gr.
1.Skráningargjald og útgáfa kennitölu í fyrirtækjaskrá
kr.
5.000
2.Tölvuskráð útskrift um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl.
kr.
700
3.Vottorð um einstök hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög o.fl. skv. tölvuskráðum upplýsingum
kr.
1.000
4.Sérvottorð
kr.
1.800
5.Gjald fyrir ljósritun gagna - fyrstu 20 blöðin
kr.
1.000
6.Gjald fyrir ljósritun gagna umfram 20 blöð (50 kr. fyrir hvert blað umfram 20)
kr.
50
3. gr.
Við skráningu í fyrirtækjaskrá, skv. 1. tölul. 2. gr. skal auðkenna skráðan aðila með kennitölu. Menn með eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skulu þó auðkenndir í fyrirtækjaskrá með kennitölu þeirra samkvæmt þjóðskrá.


4. gr.
Í vottorði skv. 3. tölul. 2. gr. kemur fram heiti félags, heimilisfang, kennitala og póstfang. Jafnframt eru útibú tilgreind ef til eru. Þá er getið um rekstrarform, stjórn félagsins, framkvæmdastjóra, prókúruhafa, hverjir riti firmað, endurskoðendur og atvinnugreinaflokkun. Hlutafé eða stofnfé er tilgreint, lausnarskylda á hlutum og hömlur á meðferð hlutabréfa ef við á. Tilgangi félagsins er einnig lýst.


5. gr.
Í sérvottorði skv. 4. tölul. 2. gr. koma fram sérgreindar umbeðnar upplýsingar um einstök hlutafélög, einkahlutafélög og samvinnufélög, sem teknar eru saman sérstaklega í hverju einstöku tilviki.


6. gr.
Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænt afrit af gagnagrunni fyrirtækjaskrár til eigin nota og/eða miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránni til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:
Fyrir afrit af fyrirtækjaskrá eða rafræna miðlun:
1.Árgjald fyrir rafrænt afrit gagna úr fyrirtækjaskrá
kr.
100.800
2.Fyrir hverja rafræna uppflettingu í afriti gagnagrunns
kr.
4
Fyrir úrtak sem inniheldur nöfn og heimilisföng fyrirtækja:
1.Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri
kr.
3.500
2.Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000
kr.
5
3.Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000
kr.
3
Fyrir úrtak sem að auki inniheldur nöfn framkvæmdastjóra/forráðenda:
1.Lágmarksgjald fyrir 500 fyrirtæki eða færri
kr.
5.000
2.Fyrir hvert fyrirtæki umfram 500 og upp í 2.000
kr.
7
3.Fyrir hvert fyrirtæki umfram 2.000
kr.
5
7. gr.
Með samningi við ríkisskattstjóra getur fyrirtæki eða stofnun fengið rafrænan aðgang að gagnagrunni hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár og heimild til miðlunar tiltekinna upplýsinga úr skránum til annarra. Gjaldtaka fyrir slíka heimild skal vera:

1.Árgjald sem innifelur 600 uppflettingar í gagnagrunninum
kr.
180.000
2.Fyrir hverja uppflettingu umfram 600 á ári
kr.
300
3.Fyrir hverja uppflettingu samþykkta, stofnsamninga og stofnfundargerða
kr.
1.000
II. KAFLI
Gjöld í ríkissjóð.
8. gr.
Ríkisskattstjóri skal á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991, með síðari breytingum, innheimta í ríkissjóð gjöld sem hér segir:

1.Fyrir skráningu hlutafélags og samvinnufélags
kr.
165.000
2.Fyrir skráningu erlends félags (útibús)
kr.
165.000
3.Fyrir skráningu einkahlutafélags og sjálfseignarstofnunar sem stundar atvinnurekstur
kr.
82.500
4.Fyrir umskráningu einkahlutafélags í hlutafélag
kr.
82.500
5.Fyrir umskráningu hlutafélags í einkahlutafélag
kr.
5.500
6.Fyrir aukatilkynningu og skráningu breytinga
kr.
1.100

III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 8. gr. laga nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá, 22. gr. laga nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs með síðari breytingum, 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 með síðari breytingum, 2. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum og 2. mgr. 10. gr. laga um samvinnufélög nr. 22/1991, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 474/2003, um útgáfu kennitölu við skráningu í fyrirtækjaskrá og reglugerð nr. 94/1998, um aðgang að hlutafélagaskrá og samvinnufélagaskrá og gjaldtöku.


Fjármálaráðuneytinu, 8. febrúar 2006.


F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Maríanna Jónasdóttir.

B_nr_162_2006.doc

Breytingar:
455/2007 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 162/2006, um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár.

 

Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
Prentvænt