Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

157/2007
felld brott með rg. nr. 1150/2008

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla,
nr. 98/2000, með síðari breytingum.

1. gr.
Eftirfarandi breytingar verði á 3. gr.:
  1. Í stað orðanna: „eða c-lið þessarar greinar“ í 1. mgr. komi: c- eða d-lið þessarar greinar.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, er verði d) liður, svohljóðandi:

Til að hefja nám á viðskipta- og hagfræðibraut skulu nemendur hafa þreytt samræmd lokapróf í íslensku, ensku, stærðfræði og einni grein að auki. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar við lok grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði skal vera 6,0 að lágmarki í hverri námsgrein og auk þess verður einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara námsgreina. Um lágmarksárangur í fjórðu greininni gilda sömu ákvæði og tilgreind eru í 2. gr. fyrir íslensku og stærðfræði.


2. gr.
2. mgr. 9. gr. orðist svo:
Menntamálaráðuneytið ákveður fyrirkomulag innritunar í framhaldsskóla og gefur út leiðbeiningar til umsækjenda um frágang umsókna. Menntamálaráðuneytið auglýsir umsóknarfrest um skólavist í framhaldsskólum árlega. Til að umsóknir um skólavist teljist gildar verður að skila þeim áður en umsóknarfrestur rennur út.


Menntamálaráðuneytinu, 13. febrúar 2007.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Guðmundur Árnason.

B_nr_157_2007.doc

Stofnreglugerð:
098/2000 - Reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt