Reglugerð
um alferðir.
I. KAFLI
Auglýsingar
um alferðir.
1. gr.
Í auglýsingum seljenda alferða í dagblöðum,
tímaritum og ljósvakamiðlum skulu koma fram upplýsingar samkvæmt 2. gr.
reglugerðar þessarar, eftir því sem við á.
2. gr.
2.1. Þegar verð alferðar er auglýst skal
það miðast við einstakling og skal þess getið þótt önnur verðtilboð séu
tilgreind í auglýsingunni.
2.2. Þegar verð er gefið upp í auglýsingum eða á annan
hátt, skulu vera innifalin öll gjöld sem skylt er að greiða vegna ferðarinnar.
2.3. Þegar gisting er innifalin í verði skal gefa upp verð
miðað við einstakling í tveggja manna herbergi fyrir tilgreint tímabil. Lengd
ferðar skal gefa upp í dögum eða heilum vikum. Með vikuferð er átt við gistingu
í 7 nætur.
2.4. Ekki má auglýsa lækkað verð nema ferð hafi áður verið
boðin á hærra verði. Þegar auglýst er lækkað verð skal fyrra verð einnig koma
fram.
II. KAFLI
Auglýsingabæklingar
um alferðir.
3. gr.
Gefi seljendur alferða út auglýsingabæklinga
sem ætlaðir eru farkaupa skulu þeir innihalda upplýsingar samkvæmt 2. og 4. gr.
reglugerðar þessarar.
4. gr.
Gera skal grein fyrir eftirfarandi atriðum:
4.1. Ferðaleiðum, áfangastöðum, hvenær og hve lengi dvalið
er á hverjum stað.
4.2. Samgöngutækjum sem nota á, eiginleika þeirra og
gæðaflokki, dagsetningum, tímasetningum og brottfarar- og komustöðum.
4.3. Tegund og staðsetningu gististaðar, gæða- eða
þægindaflokki samkvæmt reglum viðkomandi gistiríkis.
4.4. Málsverðum sem innifaldir eru í verði ferðar.
4.5. Hvort krafist er lágmarksfjölda þátttakenda í ferð og
ef svo er, hve margra og lokafresti til að tilkynna farkaupa um aflýsingu
ferðar vegna ónógrar þátttöku.
4.6. Heimsóknum, skoðunarferðum eða annarri þjónustu, sem
felst í verði alferðar.
4.7. Sérstökum aðstæðum á gististað, t.d. hávaða frá
byggingastarfsemi, umferð eða öðru sem kann að valda ónæði.
4.8. Aðgengi fatlaðra að gististaðnum.
4.9. Reglum um afpöntun og möguleika á tryggingum, sbr. 5.
gr. laga um alferðir.
4.10. Ákvæðum 9. og 13. gr. laga um alferðir.
4.11. Aukagjöldum fyrir aðstöðu sem ekki er innifalin í
verði alferðar, en unnt er að kaupa sérstakalega, svo sem einstaklingsherbergi,
bað, svalir og útsýni.
4.12. Hugsanlegum afslætti.
4.13. Hvenær og hvernig hægt er að greiða fyrir alferðina
ásamt fjárhæð fyrirframgreiðslu sé hennar krafist.
4.14. Kröfum sem gerðar eru um vegabréf, vegabréfsáritanir
og heilbrigðisráðstafanir.
III. KAFLI
Pöntun á
alferð.
5. gr.
Þegar alferð er pöntuð skal veita farkaupa
upplýsingar varðandi ferðina samkvæmt 2. og 4. gr. reglugerðar þessarar.
IV. KAFLI
Samningur um
alferð.
6. gr.
Í samningi um alferð skal koma fram:
6.1. Nafn og póstfang seljanda alferðar og tryggingarfélags
ef farkaupi kaupir forfallatryggingu fyrir milligöngu seljanda alferðar.
6.2. Sérstakar kröfur varðandi framkvæmd alferðar sem
farkaupi hefur gert og seljandi lofað að uppfylla.
6.3. Verð og greiðslutilhögun.
6.4. Frestur farkaupa til að setja fram kvörtun vegna
vanefnda á samningnum.
6.5. Upplýsingar um hugsanlegar verðbreytingar samkvæmt 7.
gr. laga um alferðir og upplýsingar samkvæmt 4. gr. reglugerðar þessarar eins
og við á.
V. KAFLI
Upplýsingar
sem veita ber áður en alferð hefst.
7. gr.
Áður en alferð hefst skal seljandi alferðar
upplýsa farkaupa skriflega eða á annan ótvíræðan hátt um eftirfarandi atriði
eins og við á. Vísa má til auglýsinga- eða kynningabæklings enda hafi farkaupi
átt kost á að kynna sér efni hans.
7.1. Hvar og hvenær skuli mæta til brottfarar og
heimferðar, hvar og hvenær millilent er og farið í annað eða svipað farartæki,
svo og áætlaðan heimkomutíma.
7.2. Klefa eða koju á skipi eða svefn- eða hvíldarklefa í
lest.
7.3. Fulltrúa seljanda alferða á áfangastað sem geta
aðstoðað farkaupa. Sé hann ekki að finna, skulu farkaupa látnar í té
upplýsingar um hvar og hvernig megi ná sambandi við þann fulltrúa sem næstur
er, í síma, bréfsíma eða á annan hátt.
7.4. Þegar um er að ræða ferðir ólögráða barna til útlanda
eða dvöl þeirra erlendis, skal veita farkaupa upplýsingar um hvernig megi ná
beinu sambandi við barnið eða ábyrgðaraðila á dvalarstað.
7.5. Möguleika á að kaupa ferðatryggingu sem bætir kostnað
af meðferð eða heimflutningi ef slys eða veikindi ber að höndum og opinber
sjúkratrygging greiðir ekki bætur.
7.6. Skilmála fyrir staðfestingu flugmiða til heimferðar og
fresti í því sambandi.
VI. KAFLI
Gildistaka
o.fl.
8. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum
nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum og skal farið með slík mál
að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi, sem öðlast þegar gildi, er sett samkvæmt
lögum um alferðir nr. 80/1994 og staðfestist hér með til eftirbreytni öllum
þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið,
7. mars 1995.
Halldór
Blöndal.
Ragnhildur
Hjaltadóttir.
Word útgáfa af reglugerð