|
|
152/2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1095/2005 um próf til að öðlast réttindi
til þess að vera héraðsdómslögmaður ásamt síðari breytingu.
1. gr. Við 2. mgr. 10. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:
Þó skal gefa próftaka, sem ekki stenst próf í einni þeirra prófgreina í fyrri hluta sem upp eru taldar í 9. gr. kost á að endurtaka próf í þeirri grein einu sinni, enda hafi skrifleg umsókn verið borin fram við prófnefnd innan 15 daga frá sendingardegi bréfs prófnefndar um einkunnir.
2. gr. Eftirfarandi breyting verður á 1. og 2. mgr. 16. gr. er hljóði svo:
1. mgr.: Dómsmálaráðherra ákveður, að fenginni tillögu prófnefndar, gjald sem þátttakendur skulu greiða fyrir námskeið, próf, endurtekningarpróf og verklega prófraun.
2. mgr.: Gjaldið skal ákveðið sérstaklega fyrir hvorn hluta prófraunar, svo og fyrir verklega prófraun og endurtekningarpróf, og skal gjaldið nema kostnaði við námskeið, próf og stjórnun.
3. gr. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga um lögmenn nr. 77 15. júní 1998, sbr. 5. gr. laga nr. 93/2004 öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 13. febrúar 2007.
Björn Bjarnason. Bryndís Helgadóttir.

Stofnreglugerð: 1095/2005 - Reglugerð um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður.
|