Utanríkisráðuneyti

147/2009

Reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Síerra Leóne. - Brottfallin

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um þvingunaraðgerðir varðandi Síerra Leóne nr. 1132 (1997) og 1171 (1998) og ákvörðunum framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir varðandi Síerra Leóne, sbr. sömu ályktanir.

Ákvarðanir framkvæmdanefndarinnar, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri hennar (http://www.un.org/sc/committees/1132/index.shtml).

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Vopnasölubann.

Vopnasölubann skal gilda gagnvart Síerra Leóne, sbr. 2.-4. mgr. ályktunar nr. 1171 (1998).

Ákvæði 1. mgr. eiga ekki við um:

 

a)

ríkisstjórn Síerra Leóne, enda sé viðkomandi búnaður undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna og aðildarríkja þeirra, sbr. 2.-4. mgr. ályktunar nr. 1171 (1998) og

 

b)

hergögn sem eru eingöngu til afnota fyrir hereftirlitshóp Efnahagsbandalags Vestur-Afríkuríkja (Military Observer Group of the Economic Community of West African States, ECOMOG).



3. gr.

Landgöngubann.

Einstaklingum, sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndin tilgreinir, sbr. I. viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 5. mgr. ályktunar nr. 1171 (1998).

4. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til á grundvelli ályktana öryggisráðsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

5. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

6. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

7. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 471/1998 um ráðstafanir til að framfylgja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1171 (1998) um þvingunaraðgerðir gegn hinum vopnuðu stjórnarandstöðusveitum í Síerra Leóne.

Utanríkisráðuneytinu, 20. janúar 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Benedikt Jónsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica