Reglugerð
um breyting á
reglugerð nr. 588/1993
um merkingu,
auglýsingu og kynningu matvæla.
1. gr.
Við 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar bætist
við eftirfarandi ml.:
Á kartöfluumbúðum skal koma skýrt fram tegundarheiti.
2. gr.
Við 44. gr. reglugerðarinnar bætist við
eftirfarandi mgr.:
Þegar kartöflur eru seldar í lausri vigt skal merkja með
áberandi hætti hvaða tegund er um að ræða.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum
nr. 24/1936 um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum og
lögum nr. 81/1988 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari
breytingum, til þess að öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytið,
23. febrúar 1995.
Össur
Skarphéðinsson.
Ingimar Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð