REGLUGERÐ
um höfundarréttargjald.
1. gr.
Höfundar verka sem útvarpað hefur verið eða gefin út á hljóðriti eða
myndriti, eiga rétt á sérstöku endurgjaldi vegna upptöku verka þeirra á hljóð-
eða myndbönd til einkanota með heimild í 3. mgr. 11. gr. höfundalaga nr.
73/1972 sbr. 1. 78/1984. Greiða skal gjald of tækjum til upptöku verka á hljóð-
og myndbönd til einkanota svo og of auðum hljóð- og myndböndum og öðrum böndum
sem telja má ætluð til slíkra nota. Gjaldið skal greitt of tækjum og böndum sem
flutt eru til landsins eða framleidd eru hér á landi og hvílir skylda til að
svara gjaldi þessu á innflytjendum og framleiðendum.
Gjald of tækjum nemi 4% of innflutningsverði (tollverði) eða
framleiðsluverði (söluverði framleiðenda) ef um innlenda framleiðslu er að
ræða.
Gjald of auðum hljóðböndum nemi kr. 10, en kr. 30 ef um auð myndbönd er að
ræða. Höfundarréttargjald þetta skal verðtryggt skv. lánskjaravísitölu frá
gildistöku lags nr. 78/ 1984, en þá var hún 879 stig. Gjald fyrir hvert
greiðslutímabil sbr. 2. gr. miðast við áorðnar breytingar á
lánskjaravísitölunni í upphafi tímabilsins.
2. gr.
Innflytjendur og framleiðendur skulu greiða gjöldin til Innheimtumiðstöðvar
gjalda skv. 4. mgr. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972. Greiðslur skal inna of
hendi ársfjórðungslega á eftirfarandi gjalddögum: Hinn 15. apríl fyrir
tímabilið janúar-mars, 15. jú1í fyrir tímabilið apríl-júní, 15. október fyrir
tímabilið jú1í-September og 15. janúar fyrir tímabilið október-desember.
Greiðslu skal fylgja skilagrein á þar til gerðum eyðublöðum. Sé greiðsla eigi
innt of hendi á gjalddaga reiknast á hana hæstu lögleyfðu dráttarvextir
samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma.
3. gr.
Innflytjendum og framleiðendum ber skylda til að afhenda
Innheimtumiðstöðinni ljósrit of aðflutningsskýrslum, innkaupareikningum ásamt
öðrum gögnum, sem upplýsingar veita um fjölda og verð innfluttra banda og
tækja.
Innheimtumiðstöðin á rétt á að löggiltur endurskoðandi viðkomandi
fyrirtækis staðfesti að uppgjör sé rétt og í samræmi við bókhald þess.
Sá sem fengið
hefur vitneskju um viðskipti innflytjenda eða framleiðenda með stoð í 1. og 2.
mgr. þessarar greinar er bundinn þagnarskyldu um þar sem harm verður áskynja og
er honum óheimilt að hagnýta sér þá vitneskju í eigin þágu eða láta öðrum hana
í té að viðlagðri ábyrgð lögum samkvæmt.
4. gr.
Gjaldtaka of hljóðböndum og tækjum skv. reglum þessum kemur til framkvæmda
1. apríl 1985, en of myndböndum og tækjum 1. nóvember 1985.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum höfundarlaga nr. 73/1972, sbr. lög
nr. 78/ 1984 og öðlast gildi frá og með 1. apríl 1985.
Menntamálaráðuneytið, 15. mars 1985.
Ragnhildur Helgadóttir.
Þórunn J. Hafstein.
Word útgáfa af reglugerð