REGLUGERÐ
um eftirlit með starfi framhaldsskóla og námsefni og
um ráðgjöf vegna kennslu og þróunarstarfa.
1. gr.
Menntamálaráðherra fer með
yfirstjórn málefna framhaldsskóla. Hann hefur reglulegt eftirlit með starfi
þeirra og fylgist með að það sé í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrá.
2. gr.
Menntamálaráðherra fylgist með því
að skólar leggi reglulega mat á starfsemi sína og sér um að utanaðkomandi
aðilar geri á fimm ára fresti úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla.
Menntamálaráðherra lætur, að eigin
frumkvæði eða að ósk framhaldsskóla, fara fram úttekt á starfsemi skóla svo oft
sem hann telur þörf á. Slík úttekt getur bæði tekið til faglegra og
fjárhagslegra þátta og miðast við ákveðna þætti skólastarfs eða heildarmat á
starfi einstakra framhaldsskóla.
Sem lið í eftirliti með starfi
framhaldsskóla getur menntamálaráðherra látið fara fram könnunarpróf í
einstökum námsgreinum sem kenndar eru á framhaldsskólastigi, m.a. í þeim
tilgangi að afla upplýsinga um námsárangur og námsstöðu nemenda.
3. gr.
Menntamálaráðherra hefur eftirlit
með því að það námsefni sem notað er í framhaldsskólum sé í samræmi við markmið
aðalnámskrár og teljist uppfylla gæðakröfur að mati fagaðila er
menntamálaráðherra tilnefnir. Eftirlit með námsefni felst m.a. í úttekt eða
könnun á námsefni í tilteknum námsgreinum eða í einstökum skólum.
4. gr.
Ef í ljós kemur, að undangengnu
mati eða að fengnum öðrum upplýsingum, að starfsemi framhaldsskóla er í
einhverju efni ábótavant tilkynnir menntamálaráðherra það skólameistara og
skólanefnd formlega með fyrirmælum um að úr verði bætt innan tiltekins
tímafrests. Tillögur skólameistara og skólanefndar um úrbætur skulu berast
menntamála-ráðherra til samþykktar innan tilgreinds tímafrests. Menntamálaráðherra
hlutast til um að skólar fái ráðgjöf eftir því sem þörf krefur og fylgist með
að úr sé bætt í samræmi við samþykktar tillögur.
5. gr.
Menntamálaráðherra sér til þess að
starfsmönnum skóla standi til boða, eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum,
ráðgjöf vegna kennslu og þróunarstarfa. Slík ráðgjöf getur falist í námskeiðum
fyrir einstaka starfsmenn framhaldsskóla eða skólann í heild, aðstoð
sérfræðinga sem vinna tímabundið í framhaldsskólum eða samningi við stofnun sem
sinnir verkefnum á þessu sviði í þágu framhaldsskóla.
6. gr.
Menntamálaráðherra fylgist
reglulega með því að framhaldsskólar hafi, að hans mati, fullnægjandi aðstöðu
varðandi húsnæði og búnað. Skólanefnd og skólameistari skulu gera grein fyrir
ástandi húsnæðis og búnaðar þegar menntamálaráðherra óskar. Menntamálaráðherra
lætur gera úttektir á fasteignum og búnaði framhaldsskóla eftir því sem hann
telur þörf á.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
4. gr., sbr. 23. gr., laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 7. febrúar 1997.
Björn Bjarnason.
Guðríður
Sigurðardóttir.
Word útgáfa af reglugerð