Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Breytingareglugerð

136/1996

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 310/1994, um endurgreiðslu eða niðurfellingu tolls og vörugjalds af kartöfluútsæði, græðlingum og öðrum efnivörum, hráefnum og hlutum til framleiðslu garðyrkjuafurða.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

0602.1000 Græðlingar og gróðurkvistir, án róta.

Úr 0602.3000 Alparósir (Azalea, Rhododendron), einnig ágræddar, sem fluttar eru inn á tímabilinu 1. september til 31. október og sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsum í a.m.k. 2 mánuði fyrir sölu.

Úr 0602.4000 Rósir, einnig ágræddar, sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi til afskurðar. Smáplöntur af pottarósum í pottum sem eru 6,5 cm eða minni og sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi í a.m.k. 2 mánuði fyrir sölu. Smáplöntur af garðrósum (1/0, 0/1) sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar á garðplöntustöð í a.m.k. eitt sumar fyrir sölu.

Úr 0602.9009 Sáðplöntur, græðlingar og smáplöntur pottlausar eða í pottum eða bakkahólfum sem eru 6,5 cm í þvermál eða minni sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi í a.m.k. 2 mánuði fyrir sölu, þó ekki stórar úrslegnar plöntur og rótarþvegnar plöntur. Hámarkspottastærð á ekki við um smávaxin afbrigði (mini-plöntur), kaktusa eða þykkblöðunga þar sem miða skal við ungplöntur. Hámarkspottastærð á ennfremur ekki við um tegundina Nertera granadensis.

Úr 0701.1000 Kartöfluútsæði flutt inn á tímabilinu 1. mars til 30. apríl.

Úr 8539.3900 Úrhleðsluperur, þ.e. háþrýstiperur til lýsingar í gróðurhúsum.

Úr 9405.1009 Háþrýstilampar til lýsingar í gróðurhúsum.

Úr 9406.0009 Forsmíðuð gróðurhús.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 22. tölul. 6. gr. og 148. gr. tollalaga nr. 55/1987, og 2. mgr. 11. gr. laga um vörugjald nr. 97/1987, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 20. febrúar 1996.

F. h. r.

Indriði H. Þorláksson.

Guðrún Ásta Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.