Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

135/2010

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005
um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
2. gr.
Fylgiskjal.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.


3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.


4. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


5. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.


6. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin öðlast gildi 1. mars 2010. Þó taka efnisákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005 ekki til frumframleiðslu á kjöti, mjólk og eggjum fyrr en 1. nóvember 2011. Um hugtakið „frumframleiðslu“ gildir skilgreining 4. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. febrúar 2010.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
B_nr_135_2010_an_fylgiskjals.doc

Breytingar:
167/2012 - Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 135/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.
136/2012 - Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 135/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt