Fjármála- og efnahagsráðuneyti

133/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 72/2013 um vöktun og skýrslugjöf í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. - Brottfallin

1. gr.

Við 15. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

 

d)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2014 frá 9. júlí 2014 um að skipta út VII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 601/2012 að því er varðar lágmarkstíðni greininga, sem vísað er til í tölulið 21apg, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2014, frá 12. desember 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, 2015/EES/8/52, bls. 762-763.



2. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2014 frá 9. júlí 2014 um að skipta út VII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 601/2012 að því er varðar lágmarkstíðni greininga, sem vísað er til í tölulið 21apg, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2014, frá 12. desember 2014.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 13. gr., 6. mgr. 18. gr., 9. mgr. 19. gr. og 7. mgr. 21. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.

Danfríður Skarphéðinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica