|
|
133/2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl.
1. gr. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna er ákveðin sem hér segir ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara:
 | Milliinnheimtubréf |  |  |
| 2. | Milliinnheimtubréf kröfuaðila eða innheimtuaðila, m.a. lögmanna: |  |  |
| 2 a | Höfuðstóll kröfu til og með 2.999 kr. | kr. | 1.300 |
| 2 b | Höfuðstóll kröfu 3.000 til og með 10.499 kr. | kr. | 2.100 |
| 2 c | Höfuðstóll kröfu 10.500 til og með 84.999 kr. | kr. | 3.700 |
| 2 d | Höfuðstóll kröfu 85.000 kr. og yfir | kr. | 5.900 |
| 3. | Fyrsta ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d) |  |  |
| 4. | Önnur ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d) |  |  |
| 5. | Eitt símtal í milliinnheimtu | kr. | 550 |
| 6. | Gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu | kr. | 2.700 |
2. gr. 2. málsl. 7. gr. reglugerðarinnar falli brott.
3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr., sbr. 21. gr., innheimtulaga nr. 95/2008, öðlast þegar gildi.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 16. febrúar 2010.
Gylfi Magnússon. Jónína S. Lárusdóttir.

Stofnreglugerð: 037/2009 - Reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl.
|