Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1300/2007

REGLUGERÐ
um notkun staðlaðra eyðublaða við birtingu opinberra útboðsauglýsinga
samkvæmt lögum um opinber innkaup, nr. 84/2007.

1. gr.
Við gerð og birtingu tilkynninga og auglýsinga um opinber innkaup og samninga, sbr. 78.-81. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007, ber að hafa hliðsjón af fyrirmyndum þeim sem birtar eru sem viðaukar við reglugerð þessa.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í XVI. viðauka (Opinber innkaup) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2006 frá 2. júní 2006: Viðaukar við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1564/2005 eru birtir sem viðaukar við reglugerð þessa.


3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, öðlast þegar gildi og kemur í stað reglugerðar nr. 239/2003 um notkun staðlaðra eyðublaða við birtingu opinberra útboðsauglýsinga samkvæmt lögum um opinber innkaup. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 655/2003 um opinber innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu.


Fjármálaráðuneytinu, 19. desember 2007.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Stefán Jón Friðriksson.

B_nr_1300_2007_an_fylgiskjals.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt