Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

130/2010

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2230/2004
um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og
ráðsins (EB) nr. 178/2002 að því er varðar net stofnana sem starfa
á sviðum sem falla undir hlutverk Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
2. gr.
Fylgiskjal.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.


3. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.


4. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin öðlast gildi 1. mars 2010.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. febrúar 2010.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_130_2010_an_fylgiskjals.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt