Reglugerð
Um meðferð búfjár við rekstur og flutning með
vögnum, skipum og flugvélum.
1. gr.
Við rekstur og flutning skal ávallt sýna búfé fyllstu nærgætni, svo að
því 1íði eins vel og kostur er.
2. gr.
Ef reka þarf hross um langan veg, t. d. vegna sölu eða útflutnings, skal
járna þau áður en þau fara úr heimahögum, en draga skal undan þeim áður en þau
fara á skipsfjöl.
Búfé, sem flytja á með skipi, skal njóta hvíldar á útskipunarhöfn í einn
sólarhring að minnsta kosti áður en það er flutt á skipsfjöl. Gildir einu,
hvort gripirnir eru reknir eða fluttir á vögnum til úttskipunarhafnar, ef um
verulega vegalengd er að ræða.
3. gr.
Búfé, sem flutt er með skipum, skal geyma í rúmgóðum, traustum stíum,
básum eða kössum undir þiljum. Á tímabilinu frá 15. júní til 30. september má
þó flytja búfé ofan þilja, en þess skal þá gætt, að það sé varið gegm stormi og
ágjöf með traustum tjaldseglum.
Áður en skipstjóri tekur búfé til flutnings skulu eigendur eða umráðamenn
þess láta af hendi ríflegt og gott fóður, er nægi til allrar ferðarinnar að
dómi viðkomandi héraðsdýralæknis eða hreppstjóra. Skipstjóri skal sjá fyrir
nægum vatnsbirgðum.
Ef margir gripir eru fluttir samtímis, skal velja gripi af svipaðri
stærð og aldri saman í stíu. Eigi skal hafa fleiri 6 stórgripi saman í stíu og
eigi fleira sauðfé en 12.
Stíubotna og bása skal strá sandi, heyi eða moði eða draga úr hálku á
annan líkan hátt.
Grindur og milligerðir skulu gerðar úr traustum, sléttum viði, án
skarpra brúna eða horna, sem meitt geta skepnurnar, og svo þéttar, að eigi sé
hætta á, að skepnur festi fætur í þeim. Skipstjórar skulu gæta þess að hafa
nægan og vanan mannafla til hirðingar og eftirlits meðan á flutningi stendur.
4. gr.
Þegar stórgripir eru fluttir með bifreiðum, skal leitast við að nota til
þess yfirbyggðar eða yfirtjaldaðar bifreiðar, sem veiti gripunum skjól og
birgi þeim útsýn, en jafnframt skal þess gætt að loftræsting sé nægileg.
Nautgripi og tamin hross skal binda tryggilega með múlbandi meðan á
flutningi stendur. Til þess að draga úr hálku skal ávallt strá flutningspall
sandi, heyi eða tréspónum. Meðan á flutningi stendur skal sérstakur gæzlumaður
hafa eftirlit með gripunum.
Ef um einstaka gripi er að ræða, má flytja þá í traustum kössum eða
básum. Hliðar slíkra flutningsbása skulu sléttar og þétt klæddar, hæð eigi
minni en 1.20 cm, nema fyrir ungviði, enda séu hliðar þá jafnan svo háar, að
skepnan geti staðið eðlilega án þess að ná upp fyrir þær. Meðan á flutningi
stendur skal skýla gripunum með seglum og ábreiðum.
Þegar margir gripir eru fluttir í einu, má flytja þá í stíum, og skal
velja saman í stíu gripi of svipaðri stærð og aldri.
Að vetrarlagi skal ávallt flytja gripi í yfirbyggðum eða yfirtjölduðum
bifreiðum. Hrossum skal eigi ætla
skemmri hvíld en einn sólarhring að loknum flutningi með bifreið eða skipi.
Hryssur og kýr, sem komnar eru að burði, má ekki flytja með skipum eða
bifreiðum.
5. gr.
Sýna skal sauðfé fyllstu nærgætni við smölun og rekstur, og forðast ber
að hundbeita það um nauðsyn fram.
Þegar sauðfé eða svín eru flutt með bifreiðum, skal ávallt hafa
gæzlumann hjá gripunum, jafnvel þó að um skamman flutning sé að ræða.
Bifreiðar þær, sem ætlaðar eru til sauðfjárflutninga, skal útbúa sérstaklega
til þeirra nota. Pallgrindue skulu þéttar og sléttar og eigi lægri en 90 cm.
Flutningspall skal hólfa sundur mcð traustum grindum í stíur, er rúmi eigi
yfir 12 kindur. Dyraumbúnaður skal vera traustur og öruggur. Þegar um langan flutning er að ræða (yfir 50
km), skal flutningspallur hólfaður undir í miðju að endilöngu, svo að engin
stía nái yfir þveran flutningspall. Flutningspall eða stíur skal strá hæfilega
miklum sandi eða heyi til þess að draga úr hálku.
Leitast skal við að flytja fé á meðan dagsbirtu nýtur. Verði þvi ekki
við komið, skal hafa ljós á bifreiðarpalli, svo að vel sjáist um allan pallinn
meðan á flutningi stendur.
Til þess að forðast hnjask, mar og meiðsli skal búaa svo um, að unnt sé
að reka búfé á flutningspall og af honum aftur.
6. gr.
Hunda, ketti, grísi og fugla skal flytja í kössum svo rúmum, að dýrin
geti staðið og legið í þeim. Ein hlið kassans eða lok skal gert úr neti eða
rimlum til þess að tryggja næga loftrás.
Ef flutningur tekur lengri tíma en 12 klukkustundir, skal sjá dýrunum
fyrir nægu fóðri og vatni til drykkjar. Fugla má ekki flytja bundna, hefta eða
í pokum.
7. gr.
Með flugvélum má einungis flytja dýr, sem eru fullkomlega heilbrigð.
Dýr, sem komin eru að burði, má ekki flytja með flugvélum.
Vanda skal umbúnað sem bezt svo að engin hætta sé á þvi, að dýrin losni
meðan á flugferð stendur.
Svo skal um búa, að hægt sé að fóðra dýrin án þess að taka þau úr stíum
eða búrum, þar sem þau eru geymd. Búr og stíur skulu vera svo rúmgóðar, að dýrin
geti staðið og lagst í þeim eftir vild.
Ef fóðra þarf dýr meðan á flutningi stendur, skal eigandi sjá um, að
þeim fylgi hentugt og gott fóður, ásamt leiðbeiningum um, hvernig fóðrun skuli
háttað.
Sé flogið í mikilli hæð, skal geyma dýr í þeim hluta flugvélarinnar, þar
sem er hæfilegur hiti og loftþrýstingur.
8. gr.
Um má1, er varða brot á reglugerð þessari og refsingar fyrir þau, fer
samkvæmt 21. gr. laga um dýravernd nr. 21 13. apríl 1957.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 21 13. april 1957 og öðlast
þegar gildi.
Í menntamálaráðuneytinu, 6. September 1958
F. h. r.
Birgir
Thorlacius.
Word útgáfa af reglugerð