Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1252/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 314/2012, um innleiðingu reglugerða framkvæmdastjórnar ESB varðandi hafnarríkiseftirlit.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1205/2012 frá 14. desember 2012 um framkvæmd 3. mgr. 10. gr. og 27. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/16 að því er varðar frammistöðu félags, sem vísað er til í 56be í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2013 frá 8. október 2013 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1205/2012 var birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, bls. 623 og verður hluti af reglugerð þessari.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 1. gr., sbr. 14. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 6. desember 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.