Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 18. júlí 2017

125/2016

Reglugerð um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varðar flugrekstur flugrekenda frá þriðja landi.

1. gr. Efni og gildissvið.

Í þessari reglugerð er mælt fyrir um ítarlegar reglur um flugrekendur frá þriðja landi, sem starfrækja loftförin, sem um getur í d-lið 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 216/2008, sem stunda flutningaflug til landsins, innan þess eða frá landinu, þ.m.t. skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, takmarka, fella tímabundið úr gildi eða afturkalla heimildir, réttindi og ábyrgðir handhafa heimildanna, sem og skilyrði fyrir því að starfræksla skuli bönnuð, takmörkuð eða háð tilteknum skilyrðum í öryggisskyni.

2. gr. Skilgreiningar.

Í þessari reglugerð er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

  1. "aðrar aðferðir til að uppfylla kröfur": tillaga um valkost annan en núverandi viðurkennda aðferð til að uppfylla kröfur eða tillaga um nýja aðferð til að staðfesta samræmi við reglugerð (EB) nr. 216/2008 og framkvæmdarreglur hennar þegar Flugöryggisstofnunin hefur ekki samþykkt aðrar aðferðir til að uppfylla kröfur,
  2. "flutningaflug" (e. commercial air transport operation): starfræksla loftfars sem felur í sér flutninga á farþegum, vörum eða pósti gegn greiðslu eða annars konar gjaldi,
  3. "flug": brottför frá tilteknum flugvelli til tiltekins ákvörðunarflugvallar,
  4. "flugrekandi frá þriðja landi": flugrekandi sem er handhafi flugrekandaskírteinis sem er gefið út í þriðja landi.

3. gr. Heimildir.

Flugrekendur frá þriðja landi skulu aðeins stunda flutningaflug innan landsins, til þess eða frá því, ef þeir uppfylla kröfur 1. viðauka og hafa heimild sem Flugöryggisstofnunin gefur út í samræmi við 2. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 452/2014 frá 29. apríl 2014 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugrekstur frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 452/2014 frá 29. apríl 2014 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugrekstur frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2015 frá 25. febrúar 2015 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 16 frá 19. mars 2015, bls. 301.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1158 frá 15. júlí 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 452/2014 að því er varðar niðurfellingu sniðmáta fyrir heimildir sem gefnar eru út til flugrekenda frá þriðja landi og tilheyrandi forskrifta, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2016 frá 2. desember 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 10 frá 16. febrúar 2017, bls. 222.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.