Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

125/2015

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“). - Brottfallin

1. gr.

Við 8. gr. bætist einn nýr töluliður, 27. liður, sem orðast svo:

27)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 895/2014 frá 14. ágúst 2014 sem breytir XIV. viðauka við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 268/2014 frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, 2015/EES/8/30, bls. 532-535.



2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð (ESB) nr. 895/2014 frá 14. ágúst 2014 sem breytir XIV. viðauka við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í staflið d. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica