Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. des. 2021

125/2006

Reglugerð um innleiðingu reglugerða á sviði flugverndar.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins eins og nánar greinir í 2. gr. Gildissvið reglugerðanna takmarkast í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2004, vegna innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2320/2002 frá 16. desember 2002 um sameiginlegar reglur um flugvernd í almenningsflugi.

2. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1217/2003 frá 4. júlí 2003 um sameiginlegar forskriftir fyrir innlendar áætlanir um gæðaeftirlit með flugvernd í almenningsflugi, merkt fylgiskjal 1, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 63/2004 frá 26. apríl 2004.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1486/2003 frá 22. ágúst 2003 um verklagsreglur við eftirlit á vegum framkvæmdastjórnarinnar á sviði flugverndar í almenningsflugi merkt fylgiskjal 2, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 156/2004 frá 29. október 2004.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1138/2004 frá 21. júní 2004 um sameiginlega skilgreiningu á viðkvæmustu hlutum haftasvæða flugverndar á flugvöllum, merkt fylgiskjal 3, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 158/2004 frá 29. október 2004.

Reglugerðirnar eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr., 4. mgr. 78. gr. sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 30. janúar 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.