Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

125/2001

REGLUGERÐ
um innheimtu höfundaréttargjalda skv. 3. og 4. mgr. 11. gr. höfundalaga.

1. gr.
Við innflutning eða framleiðslu á böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum, hvort sem er til hliðrænnar eða stafrænnar upptöku, skal greiða höfundaréttargjöld sem hér segir:
A.Hlutir til upptöku á hljóði eingöngu.
1)Af óáteknum segulböndum sem flokkast í tollnúmer (tnr.) 8523.1191, 8523.1291 og 8523.1391 skal greiða 35 kr. á hvert eintak.
2)Af óáteknum segulböndum sem flokkast í tnr. 8523.1192, 8523.1292 og 8523.1392 skal greiða 70 kr. á hvert eintak.
3)Af óáteknum segulböndum sem flokkast í tnr. 8523.1193, 8523.1293 og 8523.1393 skal greiða 105 kr. á hvert eintak.
4)Af óáteknum segulböndum sem flokkast í tnr. 8523.1194, 8523.1294 og 8523.1394 skal greiða 140 kr. á hvert eintak.
5)Af óáteknum segulböndum sem flokkast í tnr. 8523.1199, 8523.1299 og 8523.1399 skal greiða 175 kr. á hvert eintak.

B.Hlutir til upptöku á myndum ásamt hljóði.
1)Af óáteknum myndböndum sem flokkast í tollnúmer (tnr.) 8523.1121, 8523.1221 og 8523.1321 skal greiða 100 kr. á hvert eintak.
2)Af óáteknum myndböndum sem flokkast í tnr. 8523.1122, 8523.1222 og 8523.1322 skal greiða 200 kr. á hvert eintak.
3)Af óáteknum myndböndum sem flokkast í tnr. 8523.1123, 8523.1223 og 8523.1323 skal greiða 300 kr. á hvert eintak.
4)Af óáteknum myndböndum sem flokkast í tnr. 8523.1124, 8523.1224 og 8523.1324 skal greiða 400 kr. á hvert eintak.
5)Af óáteknum myndböndum sem flokkast í tnr. 8523.1129, 8523.1229 og 8523.1329 skal greiða 500 kr. á hvert eintak.
6)Af geisladiskum með allt að 2 Gb minnisrýmd sem flokkast í tnr. 8523.9001 skal greiða 35 kr. á hvert eintak.
7)Af geisladiskum með meira en 2 Gb minnisrýmd sem flokkast í tnr. 8523.9002 skal greiða 100 kr. á hvert eintak.


    2. gr.
Við innflutning eða framleiðslu eftirtalinna tækja, hvort sem er til hliðrænnar eða stafrænnar upptöku, skal greiða höfundaréttargjöld sem hér segir:
1)Af tölvum með innbyggðum geislabrennurum/geisladiskaskrifurum sem flokkast í tollnúmer (tnr.) 8471.3001, 8471.4101 og 8471,4901 skal greiða 1% af verði hvers tækis.
2)Af segulbandstækjum sem flokkast í tnr. 8520.3200, 8520.3300 og 8520.3900 skal greiða 4% af verði hvers tækis.
3)Af tækjum til upptöku, þ. á m. á geisladiska, smádiska (minidiscs), þ.e. geisladiskabrennurum/geisladiskaskrifurum sem flokkast í tnr. 8520.9002 skal greiða 4% af verði hvers tækis.
4)Af tækjum til upptöku á minnisflögur, þ. á m. í MP-3 spilara, sem flokkast í tnr. 8520.9003 skal greiða 4% af verði hvers tækis.
5)Af myndupptökutækjum sem flokkast í tnr. 8521.1029 og 8521.9029 skal greiða 4% af verði hvers tækis.
6)Af útvarpstækjum með sambyggðu segulbandstæki sem flokkast í tnr. 8527.1201, 8527.1301, 8527.2101 og 8527.3101 skal greiða 2% af verði hvers tækis.
7)Af útvarpstækjum með plötu- og/eða geislaspilara og segulbandstæki sem flokkast í tnr. 8527.1302, 8527.2102 og 8527.3102 skal greiða 1% af verði hvers tækis.


    3. gr.
    Við innflutning skal höfundaréttargjald skv. 2. gr. lagt á tollverð vöru, eftir því sem nánar er ákveðið í tollalögum nr. 55/1987, með síðari breytingum. Ákvæði þeirra laga gilda ennfremur um innheimtu á gjaldinu, eftir því sem við á, enda hafi samtök höfundaréttarfélaga falið tollyfirvöldum innheimtu þess á grundvelli 6. mgr. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972.

    Við framleiðslu skal höfundaréttargjald skv. 2. gr. lagt á framleiðsluverð vöru, eftir nánari ákvörðun ráðherra.


    4. gr.
    Reglugerð þessi er sett með heimild í 5. mgr. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972, sbr. 2. gr. laga nr. 60/2000. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 177/1989, með síðari breytingum.


    Menntamálaráðuneytinu, 29. janúar 2001.

    Björn Bjarnason.
Þórunn J. Hafstein.

    nr 125 2001.doc
Breytingar:
186/2001 - Reglugerð um breyting á reglugerð um innheimtu höfundaréttargjalda skv. 3. og 4. mgr. 11. gr. höfundalaga.
227/2001 - Reglugerð um breyting á reglugerð um innheimtu höfundaréttargjalda skv. 3. og 4. mgr. 11. gr. höfundalaga.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt