Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1243/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1221, 23. desember 2008, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:

Skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi til djúpsjávarveiða með botnfiskveiðarfærum er heimilt til 31. desember 2012, að veiða eftirfarandi fisktegundir að hámarki miðað við óslægðan fisk sem hér segir:

1. Blálanga

37.668 kg

2. Grálúða

33.881 kg

3. Keila

23.320 kg

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. desember 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica